París norðursins - sýnishorn

Sýnishorn úr kvikmyndinni París norðursins, sem verður frumsýnd á Íslandi 5. september. Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstýrir. Með aðalhlutverkin í París norðursins fara Björn Thors, Helgi Björnsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir. Björn Thors leikur Huga, sem hefur fundið skjól frá flækjum lífsins í litlu, kyrrlátu þorpi úti á landi. Hann sækir AA fundi, lærir portúgölsku og kann ágætlega við sig í fásinninu. Þegar hann faðir hans, sem Helgi Björns leikur, boðar komu sína er hið einfalda líf skyndilega í uppnámi. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni virtu Karlovy Vary í Tékklandi og fékk frábærar viðtökur. Gríðarlega jákvæðir dómar birtust í kvikmyndatímaritum eftir sýninguna.

5669
02:07

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir