Pollapönk - Segðu mér satt

Strákarnir í Pollapönk mættu til Loga í beinni og tóku lagið Segðu mér satt af plötunni Meira pollapönk. Pollapönk er hugarfóstur leikskólakennaranna Heiðars og Halla úr Botnleðju en fyrri platan, sem sló í gegn hjá krökkum út um allt land, var útskriftarverkefni þeirra við Kennaraháskóla Íslands.

Það er kannski rétt að vara foreldra yngstu barnanna við því að þau hlusti vandlega á textann í laginu, þar sem pælt er í leyndardómi skógjafa jólasveinanna og tannálfa.

14026
03:39

Vinsælt í flokknum Tónlist