Fíkniefni haldlögð
Fimm hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fíkniefnaframleiðslu. Samræmdar aðgerðir nokkurra lögregluembætta og sérsveitar ríkislögreglustjóra fóru fram víða um land á miðvikudag, meðal annars á Raufarhöfn og í Borgarnesi, vegna rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri brotastarfsemi.