Nýir ríkisborgarar á Bessastöðum
Öllum þeim sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt á árinu var í dag boðið til Bessastaða á fund Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands og Elizu Reid, forsetafrú. Í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla er það sagður stór áfangi að fá nýjan ríkisborgararétt og því skipti máli að fólk sem gengur til liðs við íslenskt samfélag finni að það sé hjartanlega velkomið.