Nú náði Meseret Defar HM-gullinu Hin þrítuga Meseret Defar frá Eþíópíu tryggði sér í dag Heimsmeistaratitilinn í 5000 metra hlaupi kvenna en hún vann einnig þessa grein á Ólympíuleikunum í London fyrir ári síðan. Sport 17. ágúst 2013 15:18
Kiprotich vann maraþongullið alveg eins og á ÓL í London Úgandamaðurinn Stephen Kiprotich tryggði sér sigur í maraþoni karla á HM í frjálsum í Moskvu í dag þegar hann kom í mark á tveimur klukkutímunum, níu mínútum og 51 sekúndu. Kiprotich vann einnig maraþonið á Ólympíuleikunum í London og er því bæði Heims- og Ólympíumeistari. Sport 17. ágúst 2013 14:00
Fékk hlaupasting en vann samt gullið Bretinn Mo Farah tryggði sér tvennu á öðru stórmótinu í röð þegar hann vann 5000 metra hlaupið á HM í frjálsum í Moskvu í gær. Hann hafði áður fagnað sigri í 10.000 metra hlaupinu og vann því báðar þessar greinar eins og á Ólympíuleikunum í London fyrir tveimur árum. Sport 17. ágúst 2013 13:28
Breti og tveir aðrir á undan Bolt í 200 metrunum Jamaíkamaðurinn og ríkjandi Heims- og Ólympíumeistari, Usain Bolt, varð aðeins með fjórða besta tímann í undanúrslit í 200 metra hlaupi á HM í Moskvu en úrslitahlaupið fer fram á morgun. Sport 16. ágúst 2013 16:23
Neglurnar hennar Ásdísar í fánalitunum Ásdís Hjálmsdóttir, eini íslenski keppandinn á HM í frjálsum í Moskvu, hóf og lauk keppni í morgun þegar hún varð í 21. sæti í undankeppninni í spjótkasti kvenna. Ásdís kastaði lengst 57,65 metra og var tæpum þremur metrum frá því að komast inn í úrslitin. Sport 16. ágúst 2013 15:45
Ásdís úr leik á HM | Langt frá sínu besta Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir hefur lokið keppni á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Moskvu í Rússlandi. Sport 16. ágúst 2013 07:38
Happahálsmennið alltaf með Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir er eini íslenski keppandinn á HM í Moskvu en hún stefnir á að fullkomna þrennuna með því að komast í úrslit á Heimsmeistaramóti. Ásdís hefur þegar komist í úrslit á EM og á ÓL. Sport 16. ágúst 2013 06:45
Neglurnar orðnar frægar Sænski hástökkvarinn Emma Green-Tregaro vakti mikla athygli á HM í frjálsum í Moskvu í gær með því að mæta til leiks með neglur sínar málaðar í öllum regnbogans litum. Sport 16. ágúst 2013 06:15
Isinbayeva ekki hrifin af samkynhneigðum Heimsmeistarinn í stangarstökki, Yelena Isinbayeva, segist styðja umdeildar aðgerðir rússneskra stjórnvalda. Það er nú ólöglegt að gefa fólki undir 18 ára aldri í Rússlandi upplýsingar um samkynhneigð. Sport 15. ágúst 2013 19:39
Sænskur sigur í 1500 metra hlaupi kvenna Abeba Aregawi, sem er fædd í Eþíópíu en keppir fyrir Svía, tryggði sér í kvöld glæsilegan sigur í 1500 metra hlaupi á HM í frjálsum íþróttum í Moskvu. Þetta voru fyrstu gullverðlaun Svía á mótinu. Sport 15. ágúst 2013 17:41
Bondarenko náði ekki heimsmetinu en tók gullið Úkraínumaðurinn Bohdan Bondarenko er heimsmeistari í hástökki karla eftir skemmtileg keppni á HM í Moskvu í kvöld. Bondarenko fór einn yfir 2,41 metra en hann gerði þrjár tilraunir við nýtt heimsmet (2,46 metra) en felldi í öll skiptin. Sport 15. ágúst 2013 17:32
Fyrstu gullin til Tékklands og Trínidad Jehue Gordon frá Trínidad og Tóbagó og Zuzana Hejnova frá Tékklandi eru heimsmeistarar í 400 metra grindarhlaupi karla og kvenna en þau tryggðu sér sigur í úrslitahlaupunum á HM í Moskvu í kvöld. Sport 15. ágúst 2013 17:15
Langstökkseinvígi í Kaplakrika í kvöld Ellefta mótaraðarmót Frjálsíþróttasambands Íslands fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði í kvöld og þar bíða margir spenntir eftir einvígi Hafdísar Sigurðardóttur og Sveinbjargar Zophoníasdóttur eins og fram kemur í frétt á heimasíðu FRÍ. Sport 14. ágúst 2013 12:15
Isinbayeva endaði ferilinn sem heimsmeistari Stangarstökksdrottningin lauk mögnuðum ferli sínum í dag með því að verða heimsmeistari á heimavelli í Moskvu. Sport 13. ágúst 2013 18:41
Ohuruogu heimsmeistari í 400 metra hlaupi Bretinn Christine Ohuruogu vann sinn annan heimsmeistaratitil í 400 metra hlaupi kvenna í Moskvu eftir æsispennandi úrslitahlaup. Sport 13. ágúst 2013 17:45
Fraser-Pryce rúllaði upp 100 metra hlaupinu Shelly-Ann Fraser-Pryce, Jamaíku, kom sá og sigraði í 100 metra hlaupi kvenna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í gær en mótið fer fram í Moskvu. Sport 13. ágúst 2013 11:00
Nýr kóngur í sleggjunni Pavel Fajdek frá Póllandi varð í gær heimsmeistari í sleggjukasti er hann kastaði 81,97 metra á HM í frjálsum sem fram fer þessa dagana í Moskvu. Sport 13. ágúst 2013 09:30
Bolt sigraði örugglega Usain Bolt sigraði 100 metra hlaupið á Heimstmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Moskvu. Sport 11. ágúst 2013 17:51
Besta þraut ársins og gull til Eaton Bandaríkjamaðurinn Ashton Eaton tryggði sér í dag heimsmeistaratitilinn í tugþraut á HM í Moskvu með 8.809 stiga þraut. Sport 11. ágúst 2013 17:08
Skreið í úrslitin en landaði gullinu Brittney Reese frá Bandaríkjunum varð í dag heimsmeistari í langstökki kvenna utanhúss í þriðja skipti með stökki upp á 7,01 metra. Sport 11. ágúst 2013 16:46
Bolt örugglega í úrslitin Jamaíkamaðurinn Usain Bolt hafði ekki mikið fyrir því að tryggja sér sæti í úrslitum 100 metra hlaupsins á HM í Moskvu í dag. Sport 11. ágúst 2013 16:25
Ivanov landaði fyrsta gulli Rússa Rússinn Aleksandr Ivanov kom, sá og sigraði í keppnisgöngu á Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Moskvu. Með sigrinum varð hann yngsti sigurvegari sögunnar í 20 km göngu. Sport 11. ágúst 2013 16:22
Irma bætti sex ára gamalt Íslandsmet Irma Gunnarsdóttir úr Breiðabliki bætti Íslandsmetið í flokki 15 ára og yngri í 300 metra grindahlaupi á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum í dag. Sport 10. ágúst 2013 18:30
Eaton með nauma forystu í tugþrautinni eftir fyrri daginn Bandaríkjamaðurinn Asthon Eaton kom fyrstur í mark í 400 metra hlaupi í tugþrautakeppninni á HM í frjálsum í Moskvu í dag. Sport 10. ágúst 2013 17:21
Féll á lyfjaprófi og farin heim Kelly-Ann Baptiste, hlaupakona frá Trínidad og Tóbagó, er fallin á lyfjaprófi. Hún hefur yfirgefið herbúðir landsliðs síns á HM í Moskvu sem hófst í morgun. Sport 10. ágúst 2013 17:15
Tvö gull til Anítu Aníta Hinriksdóttir vann til tvennra gullverðlauna á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum 15-22 ára á Kópavogsvelli í dag. Sport 10. ágúst 2013 17:13
Bolt örugglega í undanúrslitin Jamaíkamaðurinn Usain Bolt hafði lítið fyrir því að tryggja sér sæti í undanúrslitum í 100 metra hlaupi á HM í frjálsum íþróttum í Moskvu í dag. Sport 10. ágúst 2013 17:02
Höfðu sætaskipti og Farah tók gullið Englendingurinn Mo Farah kom, sá og sigraði í 10 þúsund metra hlaupi á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Moskvu í dag. Sport 10. ágúst 2013 15:30
Cameron neitar að sniðganga Ólympíuleikana David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur útilokað að breskt íþróttafólk sniðgangi Vetrarólympíuleikana í Rússlandi í febrúar. Sport 10. ágúst 2013 13:45
Fyrsta gullið í Moskvu sögulegt Edna Kiplagat frá Keníu varð í dag fyrsta konan til þess að verja heimsmeistaratitil í maraþonhlaupi á HM í Moskvu í frjálsum íþróttum. Sport 10. ágúst 2013 13:17