Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þúsundir Írana fylgja fyrrum æðstaklerkinum Ali Khamenei til grafar á lokadegi útfarar hans í borginni Mashhad í norðaustur Íran í dag. Fjórtán létust í árásum Bandaríkjanna síðustu nótt og þá hafa Íranir svarað með árásum gegn herstöðvum Bandaríkjanna í Kúveit, Katar og Barein. Erlent 9.7.2026 15:36
Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði. Erlent 9.7.2026 07:15
„Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Bandaríkjaher gerir nú árásir á Íran. Samkvæmt írönskum fjölmiðlum hafa sprengingar heyrst við suðurströnd landsins og á eyjum þeirra í Persaflóa. Erlent 8.7.2026 23:24
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent 8.7.2026 08:40
Mætti ekki í útför föður síns Mojtaba Khamenei, sem tók nýlega við sem æðstiklerkur Írana, var hvergi að sjá í jarðarför föður síns, Ali Khamenei fyrrverandi æðstaklerks. Bræður hans mættu samt. Hann hefur verið í felum frá því að hann tók við sem æðstiklerkur eftir að Bandaríkjaher felldi föður hans í loftárás í lok febrúar. Erlent 5. júlí 2026 19:49
Vikulöng jarðarför Khameini hafin Sex daga jarðarför Ayatollah Ali Khameini, æðsta leiðtoga Írans, hófst í dag. Hann lést í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í febrúar. Erlent 4. júlí 2026 14:05
Sammælast um að bera klæði á vopnin Bandaríkjamenn og Íranir eru sagðir hafa ákveðið að leggja niður vopn eftir átök síðustu daga og ætti því skipaumferð um Hormússund að geta hafist að nýju. Erlent 29. júní 2026 07:20
Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Ísraels segja Ísraelsher hafa eyðilagt neðanjarðargögn Hezbollah-samtakanna í Líbanon. Erlent 28. júní 2026 23:25
Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Enn eykst spenna í Mið-Austurlöndum en Íslamska byltingarvarðliðið í Íran (IRGC) hefur staðfest dróna- og loftskeytaárásir á Barein og Kúveit. Árásirnar hafi beinst að flugstöð Bandaríkjanna í Kúveit og flota Bandaríkjanna í Barein en hersveitir Bandaríkjahers héldu árásum sínum áfram og skutu á írönsk skotmörk í gær, laugardaginn 27. júní. Erlent 28. júní 2026 12:12
Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Hersveitir Bandaríkjahers hafa haldið áfram árásum sínum á skotmörk í Íran í kvöld. Erlent 27. júní 2026 22:34
Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Bandaríkjaher hefur gert árásir á írönsk skotmörk eftir að Donald Trump forseti sakaði Íran um „heimskulegt brot“ á vopnahléi í kjölfar árásar á flutningaskip á Hormússundi á fimmtudag. Erlent 27. júní 2026 08:00
Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Alþýðusambandið segir lækkandi heimsmarkaðsverð á bensíni ekki hafa skilað sér í lægra lítraverði á bensínstöðvum á Íslandi. Neytendur 26. júní 2026 12:13
Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið lægra frá því áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar. Olíuflutningar um Hormússund hafa aukist umtalsvert frá því að Íranir og Bandaríkjamenn gerðu samkomulag sín á milli í síðustu viku. Viðskipti erlent 25. júní 2026 11:00
Hnakkrifust á bak við luktar dyr Donald Trump Bandaríkjaforseti átti í dag spennuþrunginn fund með þingflokki Repúblikanaflokksins í öldungadeild eftir að hann aflýsti skyndilega undirritunarathöfn fyrir húsnæðisfrumvarp sem bæði Demókratar og Repúblikanar stóðu að. Rifrildin snerust aftur á móti að mestu um stríðsrekstur Bandaríkjahers í Íran. Innlent 24. júní 2026 22:53
Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt ályktun þar sem slegið er á puttana á Donald Trump forseta Bandaríkjanna og honum sagt að hætta stríðsrekstri í Íran. Erlent 24. júní 2026 07:19
Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Fyrstu samningalotu Bandaríkjanna og Írans um að ná endanlegu samkomulagi til að binda enda á stríðið lauk snemma í morgun, mánudag. Viðræðurnar hófust í gær í Sviss, í kjölfar samkomulags Bandaríkjanna og Írans í síðustu viku. Tæknilegar viðræður munu halda áfram alla vikuna en áframhaldandi átök í Líbanon eru sögð hafa veruleg áhrif. Erlent 22. júní 2026 06:35
Trump leggur aftur allt undir á Íran Trump hefur hagað sér eins og pókerspilari sem er farinn að trúa eigin blekkingum. Hann hét því að leggja eldflaugaiðnað Írans í rúst, afvopna vopnaðar vígasveitir þess á borð við Hezbollah, steypa stjórninni af stóli, velja næsta leiðtoga landsins og ná stjórn á Hormussúndinu. Engu af þessum metnaðarfullu stríðsmarkmiðum var náð. Umræðan 21. júní 2026 10:40
Vance þreifar fyrir sér í Sviss Bandaríski varaforsetinn J.D. Vance lenti í Sviss í morgun en þar eiga friðarviðræður milli Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Obbürgen seinna í dag, þrátt fyrir að íranski herinn hafi tilkynnt í gær að Hormússundi yrði lokað að nýju. Bandaríkjamenn segja að enn virðist opið fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 21. júní 2026 08:16
Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Íranir segjast hafa lokað fyrir umferð um Hormússundið á ný vegna árása Ísraelsmanna í Líbanon og meintra brota Bandaríkjamanna á vopnahléssamkomulagi. Erlent 20. júní 2026 13:56
Witkoff stefnir til Sviss Bandarískir og íranskir erindrekar eru sagðir á leið til Sviss í dag í von um að hefja viðræður um framtíð kjarnorkuvopna í Íran. Ekki liggur fyrir hvort viðræður hefjist í dag og þær virðast háðar því að átökum linni í Líbanon, en þar eru ellefu manns sagðir látnir eftir árásir Ísraels síðasta sólarhringinn. Erlent 20. júní 2026 09:31
Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Ekkert verður af fyrirhuguðum viðræðum Bandaríkjanna og Írans sem áttu að hefjast í Sviss í dag. Varaforseti Bandaríkjanna er sagður hafa hætt við á flugvellinum eftir að fréttist af árásum Ísraela á Líbanon í nótt. Erlent 19. júní 2026 07:02
Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið Gjaldtaka af skipum sem sigla um Hormússund hefst eftir að tveggja mánaða viðræðum Írana og Bandaríkjamanna lýkur, að sögn íranskra stjórnvalda. Samkomulag sem skrifað var undir í vikunni kveður á um að sundið verði opnað og án gjaldheimtu. Erlent 19. júní 2026 06:32
Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir í gærkvöldi felur í sér vopnahlé, opnun Hormússund og að Íranir komi sér ekki upp kjarnavopnum. Bandaríkjamenn skuldbunda sig einnig til þess að aflétta öllum viðskiptaþvingunum á Íran, skipta sér ekki af innri málefnum landsins og að skila frystum eignum Írana. Erlent 18. júní 2026 08:09
Trump undirritaði samkomulag við Írani Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist hafa undirritað samkomulag við Íran. Samkomulagið, sem inniheldur fjórtán atriði, var undirritað af forsetanum í Versölum nú í kvöld. Trump er staddur þar í Frakklandi í tilefni af ráðstefnu G7-ríkjanna, stærstu efnahagsvelda heimsins. Erlent 18. júní 2026 00:08
Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagt að bráðabirgðasamkomulag um að binda enda á stríðið við Íran hafi þegar verið undirritað og gaf í skyn að upplýsingar um samkomulagið yrðu birtar „mjög fljótlega“. Erlent 15. júní 2026 22:21