Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Einstaklingur sem var stunginn í Grafarvogi í nótt hlaut lífshættulega áverka. Hann var fluttur á á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem gert var að sárum hans. Innlent 9. október 2024 15:13
Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Ferðamaður tók vel í beiðni pars um að hann tæki af þeim paramynd á Þingvöllum í morgun. Þegar myndatökunni var lokið og parið á bak og burt áttaði ferðamaðurinn sig á því að hann var kortaveskinu fátækari. Innlent 9. október 2024 13:37
Ökumaðurinn liðlega tvítugur Karlmaður fæddur árið 2003 hefur réttarstöðu sakbornings vegna banaslyssins á Sæbraut um þarsíðustu helgi. Ökumenn sem aka á gangandi vegfarendur sem látast fá alltaf réttarstöðu sakbornings á meðan á rannsókn stendur. Búast má við því að rannsókn taki langan tíma. Innlent 9. október 2024 11:28
Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða sem búnar eru nagladekkjum. Innlent 9. október 2024 08:55
Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Karlmaður um sextugt sem leysti út lyf löngu látinnar sambýliskonu og dvaldi í félagslegri íbúð hennar í Reykjavík í tæpan áratug tjáði lögreglu í fyrstu skýrslutöku að hann hefði rætt við konuna í síma tveimur vikum fyrr. Það var 27. apríl 2023. Konan lést árið 2014. Innlent 9. október 2024 07:02
Mikill viðbúnaður vegna hnífaárásar í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í nótt vegna líkamsárásar í umdæminu Grafarvogur/Mosfellsbær/Árbær, þar sem eggvopni hafði verið beitt. Innlent 9. október 2024 06:16
Yazan og fjölskylda komin með vernd Yazan Tamimi, ellefu ára langveikur drengur frá Palestínu og fjölskylda hans, fengu fyrr í dag samþykkta viðbótarvernd hjá Útlendingastofnun. Fjölskyldan var boðuð í viðtal og tilkynnt um þetta. Lögmaður fjölskyldunnar segir bæði kærunefnd útlendingamála og Útlendingastofnun hafa unnið hratt að umsókn þeirra. Innlent 8. október 2024 12:26
Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður mál vegna banaslyss sem varð á Kjalarnesi sumarið 2020. Héraðssaksóknari tók ákvörðun í júní síðastliðnum. Innlent 8. október 2024 06:20
Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Karlmaður sem leysti út lyf í nafni látinnar konu um árabil hér á landi bjó einnig í félagslegri íbúð hennar í tæpan áratug. Upp komst um svik mannsins þegar lögregla sinnti útkalli vegna gruns um heimilisofbeldi. Læknir sem ávísaði lyfjunum eftir lygasögur mannsins var sviptur starfsleyfi. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir málið sorglegt og vonandi einstakt. Innlent 7. október 2024 16:38
Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Lögreglan á Suðurlandi hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum. Enn eru rúmar þrjár vikur í að notkun nagladekkja verði lögleg. Innlent 7. október 2024 12:20
Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Lögregla fylgdi eftir ábendingum um að menn úr undirheimum hafi komið að andláti tíu ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg þann 15. september. Ekki er talið að nokkuð bendi til aðkomu annarra en föður stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana. Innlent 7. október 2024 11:40
Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Nóttin virðist hafa verið fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þrír gistu fangaklefa í morgunsárið. Innlent 7. október 2024 06:33
Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Í næsta mánuði stendur til að taka í notkun nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Lögreglufulltrúi segir að með nýja kerfinu sé meðal annars vonandi hægt að ná betri tökum á skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Innlent 6. október 2024 21:28
Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Ragnheiður Kristínardóttir vísar orðum lögreglunnar á bug um að mótmælendur hafi gengið í veg fyrir lögreglubíl sem var í forgangsakstri í gær. Innlent 6. október 2024 14:23
Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Lögreglan var kölluð til vegna umferðarslyss á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Einum bíl hafði verið ekið í hlið annars bíls á talsverðum hraða, en einn var talinn slasaður á vettvangi. Innlent 6. október 2024 07:28
Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Fólk í mótmælagöngu gekk í veg fyrir lögreglubíl sem var í forgangsakstri á leið á vettvang harðs áreksturs í Hlíðunum. Fólkið gerði í því að stöðva för lögreglu að sögn varðstjóra. Innlent 5. október 2024 17:56
Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Mótmælendur sem kröfðust aðgerða í málefnum Palestínu fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig skvettu málningu á vegg sendiráðsins fyrr í dag. Þá virðist hafa komið til smávægilegra átaka milli lögreglu og mótmælenda. Innlent 5. október 2024 16:13
Tveir reyndust í skotti bíls Lögreglan stöðvaði ökumann í miðbæ Reykjavíkur í nótt en bíll hans reyndist vera með of marga farþega. Tveir voru í farangursrými bílsins. Innlent 5. október 2024 07:32
Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á meintu mútubroti þar sem einn eigenda Sigtúns þróunarfélags var sakaður um að hafa boðið kjörnum bæjarfulltrúa í Árborg fjárhagslega aðstoð í næstu kosningum gegn því að hann myndi stuðla að því að sveitarfélagið félli frá kaupum á húsi Landsbankans á Selfossi árið 2020. Innlent 4. október 2024 13:09
Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn ökumanna tveggja bíla í tengslum við rannsókn á banaslysi á Sæbraut í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 29. september. Annar ók hvítri Teslu en hinn ljósri smárútu. Innlent 4. október 2024 12:50
Stilltu til friðar í slagsmálum fyrir utan skemmtistað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stillti til friðar þegar slagsmál komu upp fyrir utan skemmtistað í Seljahverfi í gærkvöldi eða nótt. Upplýsingar voru teknar um þátttakendur en enginn handtekinn. Innlent 4. október 2024 06:18
Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Lögmaður fyrrverandi eiginkonu Páls Steingrímssonar skipstjóra, sem var til rannsóknar grunuð um að hafa byrlað Páli, afritað upplýsingar á síma hans og dreift kynferðislegu efni, segir lögreglu hreinlega ljúga í Facebook-færslu um málið. Hann kallar eftir opinberri rannsókn á vinnubrögðum lögreglu í málinu. Innlent 3. október 2024 22:57
Þrír í haldi í fíkniefnamáli Þrír voru í dag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur, grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem lögregla hefur til rannsóknar. Innlent 3. október 2024 21:56
Keyrt á tvo unga drengi Keyrt var á tvo unga drengi í dag, í tveimur mismunandi tilfellum, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar. Innlent 3. október 2024 20:52
Féll af steini við Seljalandsfoss Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningar um tvö slys með stuttu millibili seinni partinn í gær. Annars vegar féll ferðamaður af steini við Seljalandsfoss. Hins vegar féll einstaklingur af þaki húss í Rangárþingi. Innlent 3. október 2024 18:57
Leita tveggja vegna banaslyssins á Sæbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja ökumanna vegna banaslyssins á Sæbraut um síðustu helgi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að nauðsynlega þurfi að ná tali af þeim vegna rannsóknarinnar á slysinu. Innlent 3. október 2024 14:34
Áfram á bak við lás og slá vegna andláts hjónanna Fallist hefur verið á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 3. október 2024 13:25
Ekið á ungan dreng á hlaupahjóli Bíl var ekið á ungan dreng á leið í skólann rétt fyrir klukkan átta í morgun. Hann var fluttur á slysadeild í sjúkrabíl. Meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Hann var á hlaupahjóli. Innlent 3. október 2024 10:20
Afar ólíklegt að byrlunar- og símastuldarmálinu sé lokið Sigurður G. Guðjónsson lögmaður segir afar ólíklegt að byrlunar- og símastuldarmálinu svokallaða sé lokið en embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra greindi frá því í síðustu viku að ákveðið hefði verið að hætta rannsókn málsins. Innlent 3. október 2024 06:52
Bíll fullur af börnum, líkamsárás og umferðaróhöpp Vaktin í gærkvöldi og nótt var nokkuð annasöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem bárust meðal annars tilkynningar um líkamsárás og nytjastuld bifreiðar í miðborginni. Innlent 3. október 2024 06:24