Tilkynnt um fjölda líkamsárása í miðbænum í nótt Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var fimm sinnum kölluð út vagna líkamsárása á skemmtistöðum í miðborg Reykjavíkur í nótt. Innlent 23. febrúar 2020 07:37
Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir að hafa ráðist inn með öxi Karlmaður sem grunaður er um tilraun til vopnaðs ráns í skartgripaverslun í Reykjanesbæ í vikunni hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald að beiðni lögreglunnar á Suðurnesjum. Innlent 22. febrúar 2020 14:54
Tekinn með kókaín innvortis og í fórum sínum Lögregla á Suðurnesjum handtók fyrr í mánuðinum erlendan karlmann eftir að tollgæslan hafði stöðvað hann vegna gruns um að hann væri með fíkniefni meðferðis. Innlent 22. febrúar 2020 08:08
Barði í bíla og fór ekki að fyrirmælum lögreglu Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt konu í annarlegu ástandi við veitingahús í miðborg Reykjavíkur eftir að hún hafði barið í bíla og ekki farið að fyrirmælum lögreglu. Innlent 22. febrúar 2020 07:07
Grunaður barnaníðingur í varðhaldi í fjórar vikur til viðbótar Bandarískur karlmaður á fertugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn nokkrum drengjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. mars. Karlmaðurinn hefur verið í varðhaldi í þrjár vikur sem renna átti út í dag. Nú bætast við fjórar vikur til viðbótar. Innlent 21. febrúar 2020 11:50
Snarræði slökkviliðsmanna kom í veg fyrir að ekki fór enn verr Snarræði slökkviliðsmanna er talið hafa komið í veg fyrir enn frekara tjón þegar mikill eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði við Vesturvör í Kópavogi í nótt. Vélsmiðjan Hamar var verst úti í brunanum og segir eigandi fyrirtækisins það hafa verið áfall að horfa á hjarta fyrirtækisins brenna. Innlent 21. febrúar 2020 11:45
Hin meinta haglabyssa var í raun ryksugurör Georg Viðar Hannah, úrsmíðameistari við Hafnargötu í Reykjanesbæ, greip til ryksugurörs þegar karlmaður í annarlegu ástandi réðst inn í verslun sem þeir feðgar reka í bænum. Innlent 21. febrúar 2020 11:23
Óska eftir vitnum að grófri árás á fjórtán ára dreng Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú grófa líkamsárás sem átti sér stað í Hamraborg í Kópavogi um kvöldmatarleytið á mánudag í síðustu viku. Innlent 21. febrúar 2020 10:33
Slökkvistarfi að ljúka í Kópavogi Slökkvistarfi í iðnaðarhúsnæði við Vesturvör 36 fer að ljúka að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 21. febrúar 2020 09:07
„Hjartað í fyrirtækinu er farið“ Mildi þykir að ekki hafi farið enn verr þegar mikil eldur kom upp í Vélsmiðjunni Hamri, við Vesturvör í Kópavogi, upp úr klukkan þrjú í nótt. Eigandi fyrirtækisins segir skelfilegt að horfa upp á hjarta fyrirtækisins brenna. Innlent 21. febrúar 2020 07:06
Hávaðinn úr íbúðinni reyndist heimafæðing Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í nótt eftir að tilkynnt var um hávaða frá íbúð í hverfi 101 í Reykjavík. Innlent 21. febrúar 2020 06:30
Lögregla sinnti útkalli vegna unglingaslagsmála í Hafnarfirði Engin er sagður hafa meiðst í slagsmálum unglinga í Hafnarfirði í kvöld. Innlent 20. febrúar 2020 23:17
Vörðust vopnaða manninum með ryksuguröri Viðskiptavinur á leið frá úrsmiðnum sá vopnaðan mann á leið inn og gerði lögreglu viðvart. Innlent 20. febrúar 2020 22:46
Fangi stunginn á Kvíabryggju Lögreglan á Vesturlandi rannsakar árás fanga á samfanga sinn á Kvíabryggju í dag. Fanginn sem særðist var fluttur á heilbrigðisstofnun þar sem hlúið var að sárum hans. Innlent 20. febrúar 2020 21:27
Tóku upp árás á fjórtán ára dreng við Hamraborg Drengurinn sem varð fyrir árás hóps pilta er sagður þjást af höfuðverk og uppköstum eftir atlöguna. Innlent 20. febrúar 2020 20:30
Mikið tjón á innanstokksmunum eftir vopnað rán Mikið tjón varð á innanstokksmunum eftir tilraun til vopnaðs ráns hjá úrsmið í Keflavík í dag. Glerborð sem hafa skartgripi til sýnis eru mölbrotin eftir að ungur karlmaður hjó í þau með öxi. Engan sakaði en starfsfólk kom sér strax í skjól. Innlent 20. febrúar 2020 19:00
Vopnað rán hjá úrsmið í Reykjanesbæ Vopnað rán var framið í verslun í Reykjanesbæ í dag. Innlent 20. febrúar 2020 13:10
Ungur maður með loftbyssu við skólaball Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í nótt tilkynningu um ungan mann sem talinn var vera með byssu. Innlent 20. febrúar 2020 06:20
Níu fluttir á sjúkrahús eftir að nokkrir bílar lentu saman í Melasveit Hópslysaáætlun á Vesturlandi var vikrjuð eftir að nokkrir bílar lentu saman á Vesturlandsvegi í Melasveit á milli Borgarness og Akraness á níunda tímanum. Meiðsli fólksins reyndust ekki alvarleg en níu voru fluttir á sjúkrahúsið á AKranesi. Innlent 19. febrúar 2020 20:33
Ökufantarnir eru sextán og sautján ára, grunaðir um hnupl og reyndu að flýja vettvang Þrír drengir, sem lögregla á Suðurlandi handtók á Selfossi í gær eftir ofsaakstur á stolinni bifreið, eru sextán og sautján ára. Innlent 19. febrúar 2020 10:16
Rotaðist þegar vindhviða hreif hann með sér í óveðrinu Karlmaður á Suðurnesjum datt og rotaðist þegar vindhviða feykti honum til í óveðrinu sem gekk yfir landið rétt fyrir helgi. Innlent 19. febrúar 2020 08:26
Snar í snúningum þegar hann fékk flugeld inn um bréfalúguna Nokkrir piltar köstuðu flugeldi inn um bréfalúgu á íbúðarhúsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um síðustu helgi. Innlent 19. febrúar 2020 08:20
Ráðist á ungan mann í Kópavogi í gærkvöldi Ungur maður varð fyrir árás í Kópavogi um klukkan 20:30 í gærkvöldi. Í dagbók lögreglu segir að hann hafi sagt tvo hafa ráðist á sig. Innlent 19. febrúar 2020 07:02
Handtekin eftir að hafa ekið yfir naglamottu á stolnum bíl Lögreglan á Suðurlandi handtók í kvöld þrjá einstaklinga eftir að hafa veitt þeim eftirför eftir Suðurlandsvegi að Selfossi. Þeir eru grunaðir um að hafa verið á stolnum bifreiðum. Innlent 18. febrúar 2020 21:29
Ný gögn í Sönnum íslenskum sakamálum gætu leitt til endurupptöku rannsóknar á óhugnanlegu morði Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir embættið nú kanna hvort tilefnisé til að hefja aftur rannsókn á óupplýstu morði sem átti sér stað árið 1968 í kjölfar nýrra vísbendinga. Sú vinna sé þó einungis á byrjunarstigi. Innlent 18. febrúar 2020 19:30
Telja mildi að enginn slasaðist við eftirför í miðbæ Reykjavíkur Skömmu fyrir klukkan fjögur í dag barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að kona í annarlegu ástandi hefði stolið bíl við Sundahöfn. Innlent 18. febrúar 2020 17:01
Bandarískur karlmaður grunaður um kynferðisbrot gegn drengjum Bandarískur karlmaður situr nú í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni á Suðurnesjum grunaður um kynferðisbrot gegn drengjum í nokkrum löndum. Innlent 18. febrúar 2020 13:13
Mjög ölvaður á 138 kílómetra hraða Ökumaðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Innlent 18. febrúar 2020 09:53
Sígarettum stolið úr verslun í Vesturbænum Minnst þrír voru stöðvaðir í umferðinni í gær, án þess að vera með réttindi til aksturs. Innlent 18. febrúar 2020 06:12
Miklum verðmætum stolið í fimm innbrotum Brotist var inn í vinnuvélar, bifreið og tvö fyrirtæki. Innlent 17. febrúar 2020 12:28