Gagnaleki á Messenger mögulega það versta sem gæti komið fyrir Gunnar Ingi Reykjalín forstöðumaður forstöðumaður skýja- og netreksturs Origo segir netárásum stöðugt fjölga. Fólk þurfi að vita meira til að geta brugðist við. Opin umræða sé mikilvæg og forvarnir áríðandi. En líka viðbragðsáætlanir við mögulegum árásum. Innlent 9. júlí 2024 09:02
Blóðugur hnífur fannst á heimili hins grunaða Blóðugur hnífur fannst á heimili karlmanns á fimmtugsaldri sem hefur verið ákærður fyrir tilefnislausa stunguárás í janúar á þessu ári. Maðurinn neitar sök, en samkvæmt niðurstöðum sérfræðinga er hann talinn sakhæfur. Innlent 9. júlí 2024 08:35
Grunsamlegir menn reyndust dósasafnarar Tilkynnt var um tvo grímuklædda og grunsamlega aðila á rafhlaupahjólum í Kópavogi í gær eða nótt. Í dagbók lögreglu segir að þegar lögregla kom á vettvang hafi komið í ljós að mennirnir tveir voru að tína upp dósir og flöskur. Innlent 9. júlí 2024 06:49
Alelda bifreið við Rauðavatn Bíll valt við Rauðavatn í gær. Eftir að ökumanni var bjargað úr bílnum kviknaði í honum. Fjallað er um málið í dagbók lögreglu og færslu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Innlent 9. júlí 2024 06:42
Skúli Tómas kominn með lækningaleyfi Skúli Tómas Gunnlaugsson, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga sína í tilefnislausar lífslokameðferðir, er kominn með lækningaleyfi á nýjan leik. Hann er grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu og um að hafa valdið ótímabærum dauða níu sjúklinga. Innlent 8. júlí 2024 17:35
Bifhjólamaðurinn á Vestfjörðum ekki í lífshættu Svo virðist sem bifhjólaslysið sem varð í norðanverðum Arnarfirði í gær hafi komið til vegna óhapps. Engin umferðarlagabrot virðast hafa átt stað, segir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum. Innlent 8. júlí 2024 15:54
Komu sér af vettvangi eftir árás á fjóra á veitingastað Enginn hefur verið handtekinn vegna líkamsárásar sem beindist gegn fjórum einstaklingum og átti sér stað á veitingastað í umdæmi Lögreglustöðvar þrjú, sem fer með mál í Kópavogi og Breiðholti, aðfaranótt sunnudags. Innlent 8. júlí 2024 10:36
Meintur strípalingur og sjö til viðbótar gistu fangageymslur lögreglu Átta gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af fjórir sem voru til vandræða vegna ölvunar. Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Innlent 8. júlí 2024 06:18
Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Annríkt var hjá lögreglunni á Vesturlandi í nótt og fram eftir morgni og sinnti hún um sjötíu málum. Innlent 7. júlí 2024 11:40
Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við vopnamál í Rangárþingi ytra í gær eru lausir úr haldi. Hald hefur verið lagt á skotvopn en lögregla vill ekki staðfesta hvort skotum hafi verið hleypt af. Innlent 7. júlí 2024 10:48
Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Ungur maður náði myndskeiði af því í gærkvöldi þegar að sendiferðabíll keyrði rakleiðis yfir nýja umferðareyju og nýtt gangbrautarskilti við Ánanaust í Vesturbænum á móti JL húsinu. Innlent 7. júlí 2024 10:17
Sjö gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt Þó nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en lögreglan sinnti 109 málum frá klukkan fimm um eftirmiðdegi í gær þar til klukkan fimm í morgun. Sjö einstaklingar eru vistaðir í fangaklefa eftir verkefni næturinnar. Innlent 7. júlí 2024 07:34
Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu í Rangárþingi ytra í dag. Lögregla, sem naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, hefur lokið aðgerðum á vettvangi og rannsókn er á frumstigi. Innlent 6. júlí 2024 20:22
Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í útkall á þriðja tímanum í dag til að aðstoða lögregluna á Suðurlandi á Hala í Háfshverfi í Rangárþingi ytra. Karl Rúnar Ólafssonsegir ábúendur á Hala hafa skotið að gröfumanni sem var við vinnu. Uppákoman tengist deilum um jarðareign sem má rekja allt aftur til ársins 1929. Innlent 6. júlí 2024 16:34
„Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ Mál gáms sem fluttur var út fyrir bæjarmörk án vitundar eiganda hans og tíu til fjórtán milljóna króna innihaldi þess stolið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglu en rannsóknin hefur ekki leitt neitt í ljós enn sem komið er. Innlent 6. júlí 2024 11:20
30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Mjög erilsamt var hjá lögreglunni á Vesturlandi í nótt en um þessar mundir fara fram Írskir dagar á Akranesi. Um 30 tilvik voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt. Innlent 6. júlí 2024 11:19
Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ökumaður bifreiðar var handtekinn í nótt grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en hann reyndist sviptur ökuréttindum. Hann var færður til sýnatöku á lögreglustöðinni á Hverfisgötu og var laus úr haldi að því loknu. Innlent 6. júlí 2024 07:19
Mikil og þétt umferð í dag Nú í sumar rekur hver stóra ferðahelgin aðra alveg fram yfir Verslunarmannahelgi, jafnvel lengur, og þá tekur umferðin að þyngjast. Innlent 5. júlí 2024 19:27
Áttatíu ára gamall gæsastuldur á Seltjarnarnesi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rifjar upp forvitnilega lögregluskýrslu á Fésbókarsíðu sinni sem var rituð fyrir rúmum 83 árum. Lífið 5. júlí 2024 14:11
Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna Guðmundur Gunnlaugsson lagði íslenska ríkið í gær sem þarf að greiða honum 47,8 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds sem hann sætti árið 2010. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en 26,3 milljónir sem Guðmundur hefur þegar fengið í bætur verða dregnar frá bótaupphæðinni. Innlent 5. júlí 2024 11:45
Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður Ökumaður mótorhjóls, sem hafnaði utanvegar við Gígjukvísl í gær, er á lífi en töluvert slasaður. Innlent 5. júlí 2024 11:35
Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Afbrotafræðingur segir fólk ekki eiga að vera hrætt við að vera afskiptasamt ef það telur annað fólk í hættu eða í þörf á aðstoð. Ábyrgðarþynning [e. bystander effect] geri það að verkum að fólk bregðist síður við. Innlent 5. júlí 2024 09:03
Allsgáður en ók niður ljósastaur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um að ljósastaur hefði verið ekinn niður í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Ökumaðurinn, sem reyndist hvorki ölvaður né undir áhrifum annarra efna, játaði að hafa ekið of hratt og misst stjórn á bifreiðinni. Innlent 5. júlí 2024 06:32
Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Eigandi pípulagningafyrirtækisins Landslagna segir að gámur í eigu fyrirtækisins, sem staðsettur var á einkalóð þess, hafi verið fluttur út fyrir bæjarmörkin í dag án hans vitundar. Þar hafi pípulagningar- og hreinlætisvörum að andvirði tíu til fjórtán milljóna króna verið stolið úr gámnum. Eigandinn hyggst lögsækja flutningaþjónustuna. Innlent 4. júlí 2024 20:47
Mátti ekki pissa á starfsmann svo hann meig á glugga Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í dag tilkynnt um mann sem hótaði að pissa á starfsmann verslunar í miðbæ Reykjavíkur. Þegar manninum var vísað út meig hann á glugga verslunarinnar. Innlent 4. júlí 2024 18:51
Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Alvarlegt umferðarslys varð við Gígjukvísl á fimmta tímanum í dag þegar ökumaður mótorhjóls féll af hjólinu og hafnaði utan vegar. Innlent 4. júlí 2024 18:31
Fundu sautján poka af ónýtum kannabisplöntum og úrgangi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 26. júní síðastliðinn leifar af kannabisræktun við Krýsuvíkurveg nálægt Bláfjallavegi. Þar fundust sautján svartir ruslapokar fullir af mold, áburði, úrgangi og ónýtum kannabisplöntum. Efnunum hefur verið fargað og er málinu lokið af hálfu lögreglunnar. Innlent 4. júlí 2024 14:52
Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Lögreglan var kölluð til klukkan hálf ellefu í gærkvöldi vegna hunds sem lék lausum hala á Reykjanesbrautinni skammt frá Grænásbraut. Umferð var stöðvuð á brautinni af stórum sendiferðabíl sem þveraði veginn á meðan vegfarendur reyndu að ná hundinum. Innlent 4. júlí 2024 10:34
Skemmdu bíla í reiðiskasti áður en þeir flúðu lögreglu á rafskútu Tveir góðkunningjar lögreglunnar sem voru handteknir og yfirheyrðir í gær eru nú lausir úr haldi. Mennirnir ullu skemmdum á ökutækjum við Granda í Reykjavík, og flúðu svo lögreglu á rafhlaupahjóli. Innlent 3. júlí 2024 14:58
Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Rannsókn á kynferðisbrotamáli sem á að hafa átt sér stað um borð í grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq er nú lokið og málið komið á borð ákærusviðs ríkislögreglustjóra. Innlent 3. júlí 2024 14:07