Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Skipverji á grænlenska togaranum Polar Nanoq var handtekinn í morgun, grunaður um að hafa farið með konu um borð í togarann og brotið á henni kynferðislega. Innlent 8. júní 2024 18:22
Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7. júní 2024 16:19
Stolið af Grænum skátum fyrir tvær til þrjár milljónir á mánuði Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið stolið frá Grænum skátum í formi dósa og flaska á söfnunarstöðum. Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, segir að staðfestur grunur sé um að ákveðinn aðili sé á bak við verknaðinn. Innlent 7. júní 2024 11:41
Tilkynnt um ungmenni með byssur í 101 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna ungmenna með byssur í miðborg eða Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Í dagbók lögreglu segir að komið hafið svo í ljós að um var að ræða krakka í „byssu og bófa leik“. Lögreglan sinnti fjölda annarra verkefna í dag varðandi ýmis mál. Innlent 6. júní 2024 22:09
Tóku svartan mann hálstaki við handtöku og greiða bætur Ríkið hefur fallist á að greiða nítján ára manni, sem er dökkur á hörund, 150 þúsund krónur í bætur vegna handtöku sem hann varð fyrir á Þjóðhátíð á síðasta ári. Lögreglan tók manninn hálstaki í tjaldi. Innlent 6. júní 2024 13:27
Ungur maður varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Árbæ Ráðist var á átján ára mann á leið sinni heim úr útskriftarveislu í Árbæ aðfaranótt sunnudags. Hann var kýldur, sparkað var í hann liggjandi í höfuð, brjóstkassa og maga. Innlent 6. júní 2024 13:18
Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur en einn látinn laus Tveir sakborningar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á mánudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í Reykholti gegn maltneskum manni. Gæsluvarðhaldið gildir til fyrsta júlí. Innlent 6. júní 2024 12:00
Engir ytri áverkar sem skýra andlátin Engir ytri áverkar voru á líkum sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið á heimili sínu í Bolungarvík í síðustu viku. Dánarorsök er ekki ljós og nákvæm dánarstund liggur ekki fyrir, en ekkert bendir til þess að andlátin hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 6. júní 2024 10:59
Kærði gæsluvarðhaldsúrskurð vegna manndráps til Landsréttar Maður sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar kærði áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð til Landsréttar á mánudag. Landsréttur hefur ekki enn tekið málið fyrir. Innlent 6. júní 2024 10:31
Hætta rannsókn banaslyssins í Óshlíð Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á banaslysi í Óshlíð fyrir rúmlega fimmtíu árum síðan. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson er talinn hafa látist þegar leigubifreið sem hann var í hafnaði utan vegar á Óshlíðarvegi árið 1973. Málið var tekið upp að nýju í maí 2022, en rannsaka átti hvort að andlát hans hafi mögulega borið að með öðrum hætti. Innlent 5. júní 2024 18:35
Hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir banaslysið Umsögn Vinnueftirlitsins varpar nýju ljósi á banaslys sem varð fyrir sjö árum síðan í svefnskála fiskverkunarfyrirtækisins Háteigs á Reykjanesi. Adam Osowski, 43 ára frá Póllandi, lést í slysinu eftir að gas úr borholu Reykjanesvirkjunar komst upp í gegnum vatnslagnir vegna yfirþrýstings inn í svefnskálanum. Innlent 5. júní 2024 14:31
Gætu saksótt sundlaugargest vegna andláts í Breiðholtslaug Héraðssaksóknari mun taka ákvörðun um hvort sundlaugargestur verði sóttur til saka vegna mögulegar ábyrgðar hans á andláti manns sem lést í Breiðholtslaug í desember 2022. Innlent 5. júní 2024 13:43
Lögreglan hafi brugðist rétt við í líkamsárásarmáli Afbrotafræðingur segir líkamsárásardóm yfir lögreglumanni ólíklegan til að grafa undan trausti til lögreglunnar, þar sem hún tók málið til rannsóknar að eigin frumkvæði og vék viðkomandi lögreglumanni strax frá störfum. Innlent 5. júní 2024 11:30
Maðurinn sem fannst í Þórsmörk var Íslendingur Maðurinn sem fannst látinn í Þórsmörk mánudagskvöldið var Íslendingur. Eins og greint hefur verið frá fundu vegfarendur manninn á mánudaginn en málið er nú í rannsókn. Innlent 5. júní 2024 11:03
Stúlkan er fundin Fjórtán ára stúlkan sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir upp úr klukkan 10 er fundin. Innlent 5. júní 2024 10:12
Líkamsárás, innbrot og vesen á stigagöngum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum málum í gærkvöldi og nótt en í mörgum tilvikum var um að ræða ölvaða einstaklinga eða aðra sem voru að vera til vandræða. Innlent 5. júní 2024 06:18
Málið eigi ekki að rýra traust til lögreglu Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir 30 daga skilorðsbundinn dóm yfir lögreglumanni vegna líkamsárásar ekki eiga að rýra traust fólks til lögreglu. Málið hafi verið rannsakað að frumkvæði embættisins. Innlent 4. júní 2024 19:09
Líkfundur í Þórsmörk Vegfarendur í Þórsmörk gengu fram á látinn mann í gærkvöldi. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar málið en ekki er grunur um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 4. júní 2024 18:39
Hefur áhyggjur af skipulagðri brotastarfsemi á Akureyri Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa áhyggjur af skipulagðri brotastarfsemi á Akureyri og segir alvarlega þróun eiga sér stað norður á landi. Innlent 4. júní 2024 18:30
„Það er ekkert að óttast við þennan mann“ Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að láta af myndbirtingum karlmönnum á samélagsmiðlum sem það telur tengjast máli manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfjarðarbæ. Málið er í forgangi og telst enn óupplýst. Innlent 4. júní 2024 17:04
Bíl ekið á verslun Piknik í Kópavogi Bíl var ekið á verslun Piknik í Kópavogi nú sídegis. Starfsmaður segir verslunina hafa sloppið vel en bíllinn, sem ekið var á verslunina, er illa farinn. Innlent 4. júní 2024 16:40
568 tilkynningar um heimilisofbeldi á þremur mánuðum Lögreglunni barst 568 tilkynningar á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila fyrstu þrjá mánuði ársins sem gerir að meðaltali rúmlega sex tilkynningar á dag. Jafnframt hefur beiðnum um nálgunarbann fjölgað á þessu ári en þær eru 33 talsins fyrir sama tímabil. Innlent 4. júní 2024 16:25
Baðst vægðar áður en lögreglunemi beitti piparúða og kylfu Ungur lögreglunemi hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Í dóminum er því lýst hvernig hann eltist við brotaþola um miðbæ Reykjavíkur áður en brotaþoli stöðvaði og baðst vægðar. Þá beitti lögregluneminn piparúða ítrekað á manninn. Innlent 4. júní 2024 15:31
Handtóku mann í Hafnarfirði en málið enn óupplýst Lögreglan segir að manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfirði sé enn leitað og málið sé óupplýst þrátt fyrir að karlmaður hafi verið handtekinn í tengslum við það um helgina. Innlent 4. júní 2024 15:14
Lögreglumaður dæmdur fyrir brot í starfi Lögreglumaður hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Innlent 4. júní 2024 07:03
Ökumanns sem ók á mann á rafmagnshlaupahjóli leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar bifreiðar sem ók á karlmann um tvítugt á rafhlaupahjóli merktu Hopp á gangbraut á gatnamótum Akurvalla og Burknavalla í Hafnarfirði á milli klukkan tíu og ellefu í morgun. Innlent 3. júní 2024 18:06
Hlutur sakborninga mismikill Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms yfir litháenskum karlmanni sem er grunaður um að hafa valdið dauða samlanda síns í Kiðjabergi í apríl. Maðurinn var því ekki úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er þó enn í haldi en hann afplánar nú eldri fangelsisdómi. Innlent 3. júní 2024 16:47
Von á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku Lögreglan á Vestfjörðum segist enn engu nær varðandi dánarorsök sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi á Bolungarvík í síðustu viku. Von er á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku. Innlent 3. júní 2024 11:27
Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Hópur ungmenna réðust á starfsmann veitingastaðar í Mosfellsbæ í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að málið hafi verið afgreitt með aðkomu foreldra og að barnavernd hafi verið upplýst um málið. Innlent 2. júní 2024 06:19
Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Lögregla hefur til rannsóknar íkveikju í iðnaðarbili við Dofrahellu í Hafnarfirði aðfaranótt þriðjudags. Tívolíbombu var kastað inn um glugga á iðnaðarbilinu þar sem gin er bruggað í miklu magni. Mildi þykir að ekki fór verr. Innlent 1. júní 2024 07:01