

Þróunarsamvinna
Heimsljós er upplýsingaveita utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Vísir og Heimsljós eru í samstarfi um birtingu frétta um þessi mál.

Börn í lágtekjuríkjum allt að sextíu sinnum líklegri til að deyja en börn í hátekjuríkjum
Talið er að 6,3 milljónir barna yngri en fimmtán ára hafi látist árið 2017. Þar sem barnadauði er hæstur í heiminum eru börn allt að sextíu sinnum líklegri til að deyja á fyrstu fimm árum ævinnar borið saman við þjóðar með lægstu dánartíðni barna.

Lífskjör í heiminum fara batnandi – Ísland í sjötta efsta sæti
Ísland er í sjötta sæti á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna, sama sæti og fyrir tveimur árum þegar síðasti listi var birtur.

Rúmar tvær milljónir í neyðaraðstoð til Laos
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent 2,1 milljón króna til hjálpar börnum á flóðasvæðum í Laos í Suðaustur-Asíu. Þar brast stór stífla 23. júlí síðastliðinn með þeim afleiðingum að 36 létu lífið og 98 er enn saknað.

Utanríkisráðuneytið styður alþjóðleg verkefni UNICEF – mikilvægur liður í þróunarsamvinnu Íslands
Stuðningur Íslands við börn í Jemen, Rúanda, Malí og Jórdaníu er ómetanlegur samkvæmt frétt á vef Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Mannréttindi nýtt áherslusvið í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands
Samkvæmt drögum að nýrri stefnu í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands fá mannréttindi aukið vægi. Stefnan verður lögð fram á haustþingi og gildir frá árinu 2019 til 2023.

Loftslagsbreytingar auka á hungrið í heiminum
Að mati Sameinuðu þjóðanna sveltur 821 milljón jarðarbúa og 150 milljónir barna eru með vaxtarhömlun vegna vannæringar. Loftslagsbreytingar eru ein helsta skýringin á auknum matarskorti í heiminum.

Hálf milljón barna hungurmorða fyrir árslok?
Óttast er að rúmlega hálf milljón barna verði hungurmorða fyrir lok þessa árs samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna Save the Children.

UNICEF: Hvetur ríkisstjórnir að bregðast við veðurvá í þágu barna
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hvetur stjórnvöld um heim allan til þess að bregðast strax við fjölgun tilvika "öfgaveðurs“ með öryggi barna að leiðarljósi.

Stafræn tækni við manntal í Malaví
Stafræn tækni er nú notuð við gerð manntals í Malaví í fyrsta sinn. Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna færði stjórnvöldum í Malaví 15 þúsund spjaldtölvur að gjöf.

Ísland tekur þátt í svæðaverkefni í vesturhluta Afríku
Utanríkisráðuneytið og Sjávarútvegsskóli háskóla Sameinuðu þjóðanna stóðu fyrir námskeiði í notkun og greiningu gagna úr skipaeftirlitskerfum fyrir lykilstarfsmenn sjávarútvegsráðuneyta í Síerra Leone, Líberíu og Gana.

Samstarf utanríkisráðuneytisins við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina
Skrifað hefur verið undir viðbragðssamning til fimm ára milli Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Skóli í Aleppó opnaður á ný eftir aðstoð Íslendinga
Al Thawra grunnskólinn í Aleppó í Sýrlandi hefur verið opnaður á ný efitr að hafa verið endurbyggður fyrir fjármagn frá íslenskum styrktaraðilum. Kostnaður við endurbygginguna var um 12 milljónir króna og var hann fjármagnaður af SOS Barnaþorpunum á Íslandi með dyggum stuðningi einstaklinga hér á landi.