Taskmaster
Taskmaster, eða Þrautakóngur á íslensku, eru upprunalega frá Bretlandi, komu til sögunnar fyrir rúmlega áratug síðan og eru þáttaraðirnar þar orðnar tuttugu talsins. Hérlendis stýra grínistarnir Jóhann Alfreð og Ari Eldjárn þáttunum og leggja ýmsar þrautir fyrir keppendur. Fimm íslenskir skemmtikrafta keppa um að standa uppi sem Þrautakóngur, það eru leikkonan Edda Björgvinsdóttir, uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir, leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, skemmtikrafturinn Sverrir Þór Sverrisson og leikarinn Vilhelm Netó.
-
Hvenær
Hvenær sem er
-
Raða eftir
Nýjast fyrst