Eiga ekki að leika við aðra en bekkjarfélaga Embætti landlæknis og Almannavarnir minna forráðamenn barna á að draga úr tengslaneti barna sinna utan skólatíma til að vinna ekki gegn þeim hertu aðgerðum sem eru í gangi í skólum og íþróttafélögum. 3.11.2020 16:01
Biðst lausnar eftir brottvikningu sem skiptastjóri Lárus Sigurður Lárusson, lögmaður og oddviti Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi í komandi alþingiskosningum, hefur beðist lausnar sem formaður Menntasjóðs námsmanna. Hann segir brýnt að friður ríki um stjórn og starfsemi sjóðsins. 3.11.2020 11:47
Greiðir tíu milljónir vegna saknæmrar sölu á stóðhesti Guðmundur Friðrik Björgvinsson, einn færasti knapi Íslands og landsliðsmaður í íþróttinni, hefur verið dæmdur til að greiða rúmlega tíu milljónir króna í skaðabætur fyrir svik við sölu á stóðhestinum Byl til Noregs. 3.11.2020 11:32
Bein útsending: Leiðin að 2,5 milljarða króna styrk Dr. Erna Sif Arnardóttir, lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideildir Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Svefnseturs HR, heldur fyrirlestur klukkan tólf í dag um vegferðina að hinum eftirsóknarverða styrk frá Horizon 2020 ESB. 3.11.2020 11:25
Biður presta að bjóða skólunum húsnæði kirkjunnar Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, hvetur presta og sóknarnefndir landsins til að bjóða fram aðstoð kirkjunnar á þessum fordæmalausu tímum verði það til að koma að lausn þess vanda sem blasir við skólastjórnendum og skólastarfi. 2.11.2020 17:07
Mótmæla sýningu Fósturbarna í kvöld Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar mótmælir sýningu þáttarins Fósturbörn sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld. 2.11.2020 16:59
Bresk eftirlitsflugvél nefnd Andi Reykjavíkur Ný eftirlitsflugvél konunglega breska flughersins hefur verið nefnd Andi Reykjavíkur, eða Spirit of Reykjavík. Vélin er af gerðinni Poseidon MRA 1. 2.11.2020 16:31
Greiðir hálfa milljóna í bætur fyrir kynferðislega áreitni á Hressó 44 ára karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða konu sem hann áreitti kynferðislega hálfa milljón króna í miskabætur. Maðurinn hafði áður verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar. 2.11.2020 15:41
Hundrað viðtöl og ýmsir ferlar en vonandi niðurstaða eftir viku Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, telur ýmislegt benda til þess að Landspítalinn hafi náð góðum tökum á málum á Landakoti eftir að hópsýking kom upp á spítalanum þann 22. október. Hann reiknar með niðurstöðu eftir viku úr rannsókn á því hvað aflaga fór. 2.11.2020 14:34
Fjölgar starfsfólki og hrósar ríkisstjórninni Nox Medical auglýsir nú eftir fólki til starfa vegna aukinna umsvifa fyrirtækisins. Hagstæðari rekstrarskilyrði í kjölfar breytinga á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki skipta þar sköpum og eru þessar breytingar hvati til vaxtar að sögn forstjóra fyrirtækisins. 2.11.2020 12:03