Íþróttafréttamaður

Andri Broddason

Andri Broddason er íþróttafréttamaður á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Grealish í agabanni hjá Everton

Jack Grealish var ekki með Everton þegar liðið vann Newcastle 3-1 í enska deildarbikarnum vegna brota á reglum félagsins. David Moyes þjálfari Everton tók fram að þetta væri ákvörðun félagsins en ekki ákvörðun hans.

Á­frýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað

Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Arsenal hafi áfrýjað rauða spjaldinu sem Max Dowman fékk í enska deildarbikarnum þegar Englandsmeistararnir duttu úr leik gegn D-deildarliðinu Fleetwood Town. Því hefur nú verið hafnað og verður Dowman í banni í næstu þremur leikjum.

Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro

Búið er að tilkynna nýjan heimavöll fyrir fótboltaliðin AC Milan og Inter Milan á Ítalíu. Liðin hafa deilt sögufræga heimavellinum San Siro og munu halda áfram að deila heimavelli en sá nýi mun heita Generali Stadium.

Var klár í sam­keppnina við Ingvar

Aron Snær Friðriksson, markmaður Víkinga, fékk gullhanskann eftir tímabilið í Bestu deild karla. Það ætti að koma fáum á óvart þar sem Víkingur var með besta varnarlið deildarinnar en á tímabilinu gekk mikið á.

Verða án Sesko fram í janúar

Það virðast ekki margar góðar fréttir berast úr herbúðum Manchester United þessa stundina en nóg virðist vera af slæmum fréttum. Nú bárust fregnir að Benjamin Sesko, framherji liðsins, væri frá vegna meiðsla þangað til í janúar.

Snýr aftur til keppni eftir saurslysið

Joanna Wietrzyk snýr aftur til keppni í Hyrox eftir að hafa kúkað á sig í keppni fyrir nokkrum vikum. Hún var mikið gagnrýnd fyrir að halda áfram keppni eftir slysið en hún endaði á því að vinna keppnina.

Átti erfitt fyrsta tíma­bil en getur nú skrifað söguna

Kimi Antonelli er svo gott sem búinn að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 þar sem hann þarf aðeins tvö stig í næstu keppni til þess að tryggja sér titilinn formlega. Geri hann það verður hann yngsti heimsmeistari í Formúlu 1 í sögunni og sýnir gríðarlegan viðsnúning frá síðasta tímabili.

Sjá meira