Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Arsenal fór í heimsókn til Sunderland í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Mikill hiti var í leiknum en Englandsmeistararnir enduðu á því að vinna leikinn 2-0. 12.9.2026 18:47
Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði IFK Göteborg þegar liðið vann Halmstad BK í sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið hefur nú unnið þrjá leiki í röð. 12.9.2026 17:47
Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Logi Tómasson var á skotskónum þegar lið hans Samsunspor tók á móti Corum í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Mikið gekk á og voru skoruð fjögur mörk á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. 12.9.2026 16:26
Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Tottenham tók á móti Everton í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn var heldur tíðindalítill og endaði á 0-0 jafntefli. 12.9.2026 16:16
Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Albert Guðmundsson byrjaði á bekknum en kom inn á hjá Lazio þegar liðið tók á móti AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Leikurinn endaði með sanngjörnu 2-2 jafntefli. 12.9.2026 15:46
Hull enn taplaust í deildinni Lið Hull City hélt áfram að vera taplaust í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið heimsótti Chelsea í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Hull City lenti undir snemma leiks en liðið ætlaði ekki að gefast upp og endaði leikurinn á 2-2 jafntefli. 12.9.2026 13:47
Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Formúla 1 keppir á glænýrri kappakstursbraut í Madríd um helgina þegar spænski kappaksturinn fer fram. George Russell, ökumaður Mercedes, var hraðastur á fyrstu æfingum og segir brautina vera erfiðari heldur en brautina í Mónakó. 11.9.2026 15:01
„Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Mikið hefur gengið á hjá varnarmanninum Lewis Hall en hann hefur verið mikið orðaður við Manchester United í sumar. Hann hefur nú skrifað undir nýjan samning við Newcastle United sem mun gilda til 2031. 11.9.2026 10:33
Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Nýtt frjálsíþróttamót hefur göngu sína um helgina þar sem tíu milljónir dollara verða í verðlaunafé. Mótið er aðeins fyrir allra bestu íþróttamennina í hverri grein og má búast við gríðarlegu sjónarspili. 11.9.2026 09:31
Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu NFL-deildin spilaði sinn fyrsta leik í Ástralíu í nótt þegar San Francisco 49ers unnu Los Angeles Rams. Leikurinn endaði með öruggum 27-7 sigri 49ers en yfir 100 þúsund manns voru í stúkunni að horfa á leikinn. 11.9.2026 09:00