Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Argentína tryggði sig í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir dramatískan sigur á Grænhöfðaeyjum. Ekki var mikið búist við af Grænhöfðaeyjum fyrir leikinn en liðið getur verið stolt af sinni frammistöðu. 3.7.2026 21:33
Heldur toppsætinu í Færeyjum Íslendingaliðið NSÍ Runavík hélt toppsæti sínu í færeysku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir toppslag gegn Klaksvík í kvöld. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli en þetta er annar leikurinn í röð hjá NSÍ Runavík sem endar með jafntefli. 3.7.2026 20:07
Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Lewis Hamilton byrjar fyrstur í sprettkeppninni á morgun eftir að hafa keyrt hraðast í tímatökum í dag. Þetta var sértímataka einungis fyrir sprettinn en tímatökur fyrir kappaksturinn sjálfan eru á morgun. 3.7.2026 19:32
Nýr þjálfari Ronaldo og félaga Ástralinn Ange Postecoglou hefur verið ráðinn sem þjálfari Al Nassr í Sádí Arabíu. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið. 3.7.2026 19:02
Verið er að selja miða á 16-liða úrslitin á margar milljónir Miðar á leik Mexíkó og Englands í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta eru búnir að hækka margfalt í verði. Verið er að selja þá á formlegum endursöluvef á vegum Fifa. 3.7.2026 18:01
Egyptaland brást ekki bogalistin í vítaspyrnukeppninni Egyptaland komst í 16-liða úrslit eftir dramatíska vítaspyrnukeppni gegn Ástralíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. 3.7.2026 17:31
Sjáðu stuðningsmenn Kongó fagna marki á Englandi Hópur stuðningsmanna Kongó var búinn að safna sér saman á götum Lundúna fyrir leik Englands og Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Stuðningsmennirnir fögnuðu innilega þegar Kongó komst yfir í leiknum en England endaði á að vinna leikinn 2-1. 3.7.2026 07:01
Dagskráin í dag: Hörkuslagur í Bestu deildinni Nóg um að vera á sportrásum Sýnar þennan fyrsta föstudag í júlí. Einn leikur í Bestu deild karla er á dagsskrá ásamt Formúlu 1 og golfi. 3.7.2026 06:01
Barir á Englandi opnir lengur á meðan England spilar Breska þingið hefur gefið börum á Englandi leyfi til að hafa opið til fimm um morguninn á mánudaginn þegar England mætir Mexíkó í 16-liða úrslitum HM í fótbolta. Leikurinn mun byrja klukkan eitt eftir miðnætti á enskum tíma. 2.7.2026 23:15
Mun Nagelsmann hætta með landsliðið eða verður hann rekinn? Miklar sögusagnir eru í gangi um framtíð Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfara Þýskalands, um að hann segi af sér. Þýskaland olli vonbrigðum á heimsmeistaramótinu í fótbolta og datt út í 32-liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni gegn Paragvæ. 2.7.2026 22:31
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent