Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Steven Caulker, fyrrum leikmaður Stjörnunnar, er atvinnulaus en ætlar ekki að láta það stoppa sig. Hann ætlar að halda ótrauður áfram þrátt fyrir að hann fái mikla höfnun frá störfum sem hann sækir um. 19.10.2026 10:31
Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Tennisparið Elina Svitolina og Gael Monfils hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina. Ástæðan fyrir skilnaðinum er að eftir innrás Rússlands inn í Úkraínu hefur Svitolina verið óviss með sjálfa sig og hún þarf að stíga frá hjónabandinu til að finna hver hún er. 19.10.2026 09:30
Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Fólk hefur oft gaman af því að kaupa hluti sem hafa verið notaðir á sögulegum augnablikum. Gengi Noregs á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar var frábært og urðu mikið af stórum augnablikum fyrir norsku þjóðina. Þar var fagn liðsins með róðri sem stóð rækilega upp úr hjá þeim sem fylgdust með mótinu. 19.10.2026 09:01
Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Juventus steinlá fyrir Lazio í ítölsku úrvalsdeildinni í gær og virtist liðið hríðfalla eftir að hafa fengið fyrsta markið á sig. Luciano Spalletti þjálfari Juventus sagði eftir leikinn að hann væri ekki lengur viss hvort að hann væri með stuðning frá félaginu. 19.10.2026 08:30
Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Steph Curry, leikmaður Golden State Warriors, sást haltra af velli á æfingu sem var opin fyrir almenning. Þetta er óheppileg tímasetning þar sem fyrsti leikur tímabilsins fyrir liðið er í vikunni. 19.10.2026 08:00
Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Ýmsir hafa sagt sína skoðun á Michael Carrick, þjálfara Manchester United, síðustu daga en gengi liðs hans hefur ekki verið frábært. Liðið er aðeins með sjö stig þegar sjö umferðir eru búnar af ensku úrvalsdeildinni en það er nægur tími til þess að bæta gengið. 19.10.2026 07:30
Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Michael Carrick, þjálfari Manchester United, sagði að leikmannahópur Manchester United væri búinn að ýta frá sér málinu sem Lissandro Martinez vakti athygli á eftir tapið gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni. 16.10.2026 17:02
Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Manchester United heimsækir Elland Road á sunnudaginn þar sem liðið mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni. Sagan virðist ætla að endurtaka sig þar en síðast þegar liðið heimsótti Leeds varð dramatík þegar Jason Wilcox, knattspyrnustjóri Manchester United, var gagnrýndur af þáverandi þjálfara Manchester United, Ruben Amorim. Nú er aftur verið að gagnrýna Wilcox en varnarmaðurinn Lisandro Martinez gagnrýndi aðgerðaleysi stjórnar félagsins eftir að félagið tapaði fyrir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni. 16.10.2026 15:02
Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Spænska félagið Getafe hefur haft samband við enska vængmanninn Jadon Sancho. Hann er þessa stundina án liðs eftir að samningur hans við Manchester United rann út. 15.10.2026 17:47
Bæði íslensku liðin tryggðu sig í úrslitin á EM EM í hópfimleikum stendur yfir og klárast á laugardaginn en þar er Ísland með lið í kvennaflokki og blönduðum flokki. Undanúrslitin fóru fram í dag og náðu bæði íslensku liðin að tryggja sig í úrslitin. 15.10.2026 17:00