Endar Eriksen hjá Tottenham á ný? Christian Eriksen er úti í kuldanum hjá Inter Milan og það gæti orðið til þess að hann snúi aftur til Tottenham einungis einu ár eftir að hann yfirgaf félagið. Að sama skapi gæti Dele Alli yfirgefið Tottenham og farið til PSG. 9.1.2021 15:00
Gylfi spilaði er Everton marði Rotherham eftir framlengingu Everton þurfti framlengingu til þess að slá B-deildarliðið Rotherham United úr enska bikarnum er liðin mættust á Goodison Park í dag. Lokatölur 2-1. 9.1.2021 14:39
Ungu strákarnir hjá Derby slegnir út af utandeildarliði | Jón Daði kominn áfram Utandeildarlið Chorley gerði sér lítið fyrir og sló B-deildarliðið Derby út úr enska bikarnum. Lokatölur 2-0. Derby stillti þó upp varaliði þar sem aðallið félagsins, sem og Wayne Rooney og þjálfarateymið, eru í sóttkví. 9.1.2021 14:07
Poirier vill blóðugan bardaga við Conor á UFC 257 UFC bardagakappinn Dustin Poirier vonast eftir blóðugum bardaga við Conor McGregor er þeir mætast á UFC 257 sem fer fram 23. janúar. 9.1.2021 13:31
Sveindís á lista UEFA yfir þá tíu leikmenn sem fólk á að fylgjast með á árinu Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins og Kristianstad í Svíþjóð, er á meðal þeirra tíu leikmanna sem heimasíða Meistaradeildar kvenna biður fólk um að fylgjast með á næstu leiktíð. 9.1.2021 13:00
Alvarlegt slys á HM í Sviss: Þyrla þurfti að sækja keppenda Alvarlegt slys varð í bænum Adelboden í Sviss í dag er skíðamaðurinn Tommy Ford meiddist er hann var við keppni á heimsbikarmótinu í risasvigi. 9.1.2021 12:32
Skipti um treyju við Fabinho en eftir spjall við einn úr þjálfarateyminu tók hann á rás Hinn sautján ára gamli Louie Barry gleymir væntanlega seint gærkvöldinu er hann skoraði sitt fyrsta mark í aðalliðsfótbolta gegn ríkjandi ensku meisturunum í Liverpool. 9.1.2021 11:36
Harris English leiðir á Havaí en stór nöfn skammt undan Hinn 31 árs gamli Bandaríkjamaður, Harris English, er í forystunni eftir tvo hringi á Sentry Tournament of Champions mótinu sem fer fram í Kapaua á Havaí. 9.1.2021 11:00
Curry og LeBron í banastuði | Myndbönd Stórskytturnar LeBron James og Steph Curry voru í miklu stuði í NBA körfuboltanum í nótt. LeBron var stigahæstur í sigri Lakers gegn Chicago og Curry skoraði flest stig Golden State í sigri á Clippers. 9.1.2021 10:41
Áhyggjur leikmanna fá lítinn hljómgrunn hjá forsetanum Undanfarna daga hafa handboltamenn lýst yfir áhyggjum sínum yfir því að áhorfendur verði á pöllunum í leikjunum á HM en þær áhyggjur virðast fá lítinn hljómgrunn frá handboltaforystunni. 9.1.2021 09:31