Samkeppniseftirlitið gefur grænt ljós á samruna Síldarvinnslunnar og Vísis Niðurstaða rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á kaupum Síldarvinnslunnar á öllu hlutafé í útgerðinni Vísi í Grindavík er að ekki séu forsendur fyrir íhlutun í samruna félaganna tveggja. Meðal þess sem rannsakað var voru möguleg sameiginleg yfirráð Samherja og tengdra félaga yfir Síldarvinnslunni. 14.11.2022 19:45
Segir Bjarna ekki þora að mæta sér í Kastljósi Formaður Samfylkingarinnar segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra ekki þora að mæta sér í Kastljósi í kvöld til þess að ræða Íslandsbankaskýrsluna. Hún segir málinu engan veginn vera lokið. 14.11.2022 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisendurskoðun segir margt hafa farið úrskeiðis við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og bendir á að Bankasýslan hafi ekki fylgt meginreglu laga um að fá hæsta verð fyrir hlutinn. Fjármálaráðherra hafnar því að farið hafi verið á svig við lög við söluna. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 14.11.2022 18:01
Snarræði áhafnar þyrlunnar bjargaði mannslífi Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar komst í hann krappan á föstudag þegar sækja þurfti alvarlega veikan sjúkling á Ísafjörð í aftakaveðri. Áhöfnin ákvað að fljúga þyrlunni aftur á bak inn Skutulsfjörð og komst þannig á leiðarenda. Læknar sem meðhöndluðu manninn á Landspítalanum segja snarræði áhafnarinnar hafa bjargað lífi hans. 14.11.2022 07:00
Bankasýslan bregst við Íslandsbankaskýrslunni: Framkvæmd sölunnar hafi verið í fullu samræmi við lög Bankasýsla ríkisins gerir viðamiklar athugasemdir við skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, sem birt verður á morgun. Bankasýslan segir meðal annars að fyrirkomulag sölunnar hafi verið í fullu samræmi við lög og reglur og að starfsfólk stofnunarinnar búi yfir haldgóðri menntun og mikilli reynslu af umsýslu og sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. 13.11.2022 20:53
Eldur kom upp í strætisvagni Eldur kom upp í strætisvagni á Grensásvegi um klukkan 17:30 í dag. 13.11.2022 18:17
Fjöldi umsókna vegna lýtaaðgerða hefur tæplega þrefaldast Umsvif Sjúkratrygginga Íslands hafa aukist mikið frá árinu 2018. Til að mynda gerðu þær í fyrra tæplega þrefalt fleiri nýja samninga en árið 2018. Þá hefur umsóknum vegna lýtaaðgerða fjölgað um 184 prósent og umsóknum vegna aðgerða erlendis fjölgað um 269 prósent. 13.11.2022 17:59
Sýningarflugvélar skullu saman í lofti Talið er að sex manns hafi verið um borð í tveimur gömlum herflugvélum sem skullu saman í lofti á hersýningu í Dallas í Bandaríkjunum í dag. 12.11.2022 23:06
Fimmtíu klukkustunda þolraun þegar borið mikinn árangur Hinn fertugi Einar Hansberg gerði tíu upphífingar á korters fresti, ellefu réttstöðulyftur og brenndi 56 kaloríum á hjóli eða róðravél í fimmtíu klukkutíma síðustu tvo sólarhringa. Það gerði hann til að styrkja Píeta samtökin. 12.11.2022 22:06
Einn stofnenda The Clash og PiL er látinn Gítarleikarinn Keith Levine er látinn, 65 ára að aldri. Hann var einn af þeim sem stofnuðu goðsagnakenndu pönkhljómsveitina The Clash og síðar hljómsveitina Public Image Ltd. 12.11.2022 21:24