Líkur á gosi aukist með hverjum degi sem virkni helst óbreytt Um þrjú þúsund skjálftar hafa mælst við eldstöðina í Fagradalsfjalli í dag. Það er svipaður fjöldi og hefur mælst dag hvern frá 21. desember. Líkur á eldgosi aukast með hverjum deginum sem líður með óbreyttu ástandi, að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. 25.12.2021 20:44
Björk kaupir Sigvaldahús á 420 milljónir króna Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins hefur tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir gengið frá kaupum á Sigvaldahúsinu að Ægissíðu 80. Kaupverðið sé hvorki meira né minna en 420 milljónir króna. 25.12.2021 20:03
Frans páfi biður fyrir endalokum faraldurs Frans páfi fagnaði komu jólanna í gærkvöldi fyrir framan um tvö þúsund manns í Péturskirkju í Vatíkaninu. Í predikun sinni gerði páfinn lítillæti Krists að umtalsefni sínu og hvatti fólk til að minnast þess að frelsari kristinna manna hefði komið í heiminn fátækur. 25.12.2021 19:06
Óbólusettur með Covid-19 en myndi ekki breyta neinu Nökkvi Fjalar Orrason, athafnamaður og áhrifavaldur, greindist smitaður af kórónuveirunni á landamærunum við komuna til landsins á dögunum. Hann hefur ekki þegið bólusetningu en segist engu myndi breyta um það, þótt hann gæti. 25.12.2021 18:33
Ómíkronsmitaðir leggjast inn á spítala í fyrsta sinn Einn af hverjum þremur sem smitast af kórónuveirunni í Lundúnum smitast af ómíkron-afbrigðinu. Nú hafa fyrstu sjúklingarnir lagst inn á spítala með afbrigðið á Bretlandseyjum. 12.12.2021 15:01
Blóðmerahald sé versta dýraverndarbrot Íslandssögunnar Árni Stefán Árnason, lögfræðingur og sérfræðingur um dýravernd, segir blóðmerahald hafa verið stundað hér á landi í fjörutíu ár, miklu lengur en almenningur geri sér grein fyrir. Það sé jafnframt alvarlegasta brot á reglum um dýravernd í sögu þjóðarinnar. 12.12.2021 14:00
Veittu skátunum veglegan styrk Hringfarinn Kristján Gíslason og eiginkona hans Ásdís Rósa Baldursdóttir vilja láta gott af sér leiða og hafa meðal annars stutt við bataferli fíkla. Læt að nýju styrktarmálefni leiddi þau að fjölskylduskátun, nýju verkefni á vegum skátahreyfingarinnar. Í gær veittu þau skátunum tíu milljóna króna styrk. 12.12.2021 12:35
96 greindust smitaðir innanlands í gær Í gær greindust 96 einstaklingar smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Þá greindust ellefu á landamærunum. 12.12.2021 10:59
Travis Scott sparkað af Coachella Tónlistarmaðurinn Travis Scott mun ekki koma fram á Coachella en hann átti að troða upp á aðaltónleikum hátíðarinnar sem er ein sú stærsta í heiminum. Sextíu þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til skipuleggjenda hátíðarinnar um að sparka Scott. 12.12.2021 10:16
Flutningamál, blóðmerahald, orkumál og plast í Svíþjóð Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Pál Hermannsson hagfræðing, sem er sérfróður um flutningamál og ætlar að fjalla um Sundahöfn og Sundabraut og færa rök fyrir milljarðasparnaði sem ná má með hagkvæmri útfærslu á hvoru tveggja. 12.12.2021 09:57