Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Maður vill trúa kúnnunum sínum“

Leigusali segir farir sínar ekki sléttar af viðskiptum við óprúttið par sem vildi fá gistinótt endurgreidda en reyndist svo hafa notað aðstöðu íbúðarinnar og lagt hana í rúst. Málið sé hrein svik en „leiðinlegast er hvernig er farið með eigur manns.“

Hætta rann­sókn á and­láti á Hraunbúðum

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum en rannsókn lögreglu hófst í janúar á þessu ári. Krufningarskýrsla hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram. 

Þrír hand­teknir vegna slags­mála

Þrír voru handteknir í tengslum við slagsmál í miðborg Reykjavíkur í dag. Málið er í rannsókn en lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um atvikið. 

Ís­lendingar sópa að sér verð­launum í dansi

Heimsmeistaramótið í dansi stendur nú yfir í Dyflinni á Írlandi. Um risamót er að ræða. Keppendur þess eru á aldrinum sjö til tuttugu og fimm ára og eru þeir um ellefu þúsund í ár. Fjölmargir Íslendingar keppa á mótinu en fyrir hönd Íslands keppa meðal annars dansarar frá Danskompaníinu og Danskóla Birnu Björns. Mótið hófst 8. júní og því lýkur á morgun.

Segir gríðar­legt á­lag á miðakaupendum í sumar

Greint var frá því í gær að óvenju margir miðar væru lausir í Herjólf og hægt hafi gengið að leigja út húsnæði í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Viðburðarhaldari með meiru segir vangaveltur um aðsóknina ekki óeðlilegar en að mikið álag hafi verið á tónleikagestum í sumar. Margar breytur spili inn í ferðalög fólks um þessa stærstu ferðahelgi ársins en sú ákvörðun verði líklega tekin mánudaginn fyrir helgina sjálfa. 

Fimm­tíu og sjö með stöðu sak­bornings vegna van­rækslu brúar

Fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins sem rak Morandi-brúnna í Genóa fékk tólf ára fangelsisdóm vegna vanrækslu brúarinnar sem hrundi árið 2018. Fjörutíu og þrír létust í slysinu, einu versta samgönguslysi í sögu Ítalíu, en réttað var yfir fimmtíu og sjö manns í dag vegna málsins. 

Sjá meira