Langreyðarnar komnar á land Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, komu á land í Hvalfirði snemma í morgun. 23.6.2026 07:18
Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt en hvassara og rigningu með köflum sunnantil á landinu í dag en að það bæti í úrkomu í kvöld. Stöku skúrir verði vestanlands en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hiti geti náð 16 stigum. 23.6.2026 06:48
Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um leigubílstjóra sem átti í vandræðum með farþega. Farþeginn hafi neitað að greiða fyrir farið og ráðist á bílstjórann. Hann hafi verið vistaður í þágu rannsóknar á málinu. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir verkefnum Austurbæjar, Miðbæjar, Vesturbæjar og Seltjarnarness. 23.6.2026 06:25
86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Rúmlega 86 prósent landsmanna horfðu ekki á úrslitakvöld Eurovision sem haldið var í Vín í Austurríki samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Rúmlega 27 prósent sögðust sakna þátttöku Íslands í keppninni en 73 prósent ekki. 22.6.2026 17:51
Burnham formlega orðinn þingmaður Andy Burnham sór embættiseið fyrr í dag og er því formlega orðinn þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Makerfield. 22.6.2026 16:57
Lögreglan lýsir eftir stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sautján ára stúlku. 22.6.2026 15:56
Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Framkvæmdastjóri KA og mótsstjóri N1-mótsins á Akureyri segir mótinu ekki stillt upp í samkeppni við Króksmótið á Sauðárkróki. N1-mótið fyrir sjötta flokk kvenna í knattspyrnu verði til í framhaldi af N1-móti stráka á sama aldri sem haldið hefur verið fjörutíu ár. 22.6.2026 15:37
Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist 5.152 nemendur fengu úthlutaða skólavist í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2026–2027, sem er mesti fjöldi frá upphafi. 22.6.2026 13:50
„Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Króksmót ÓB sjötta flokks stúlkna í knattspyrnu var haldið á Sauðárkróki um helgina. Mótsstjóri segir mótið hafa gengið vel en þátttaka hafi þó verið dræmri en síðustu ár. Samkeppni við stærra mót setji strik í reikninginn og óljóst sé hvort að mótið verði haldið að ári. 22.6.2026 12:38
Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Í fyrra var fyrsta árið þar sem náttúrufræðibraut var ekki fjölmennasta brautin meðal brautskráðra stúdenta í nær áratug, eða frá árinu 2016. Flestir sem brautskráðust með stúdentspróf í fyrra útskrifuðust af öðrum en hefbundnum námsbrautum. 22.6.2026 09:20