Leita að stóru húsnæði fyrir ýmsar stofnanir ríkisins Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir leitar nú að átta til tuttugu þúsund fermetra skrifstofuhúsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu til leigu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins. 21.6.2022 14:37
Fyrrverandi hljómborðsleikari Fleetwood Mac látinn Brett Tuggle, fyrrverandi hljómborðsleikari sveitarinnar Fleetwood Mac og liðsmaður David Lee Roth Band, er látinn, sjötugur að aldri. Hann lést af völdum krabbameins. 21.6.2022 13:04
Hans Enoksen lætur af formennsku Grænlenski stjórnmálamaðurinn Hans Enoksen hefur ákveðið að láta af formennsku í flokknum Naleraq. 21.6.2022 11:18
Sigyn til Empower Sigyn Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Empower þar sem hún mun leiða þróun jafnréttishugbúnaðarins Empower Now. 21.6.2022 09:53
Unnið að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs Unnið verður að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs eftir að jörðin Heiði skipti um eigendur. 21.6.2022 09:08
Verkföll lama lestarsamgöngur í Bretlandi Lestarsamgöngur lömuðust í Bretlandi í morgun þegar allt að 40 þúsund starfsmenn lögðu niður störf í umfangsmestu verkfallsaðgerðum lestarstarfsmanna í landinu í heil þrjátíu ár. Verkfallið hefur áhrif á ferðir milljóna farþega. 21.6.2022 09:00
Bankasöluskýrslu ekki lokið fyrir mánaðarlok Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verður ekki kláruð fyrir lok þessa mánaðar líkt og stefnt var að. 21.6.2022 08:05
Valdamesti maður Póllands hættir í ríkisstjórninni Jaroslaw Kaczynski, leiðtogi pólska stjórnarflokksins Lög og réttlæti, hefur ákveðið að segja af sér sem aðstoðarforsætisráðherra landsins til að búa flokkinn undir komandi þingkosningar sem fram fara á næsta ári. 21.6.2022 07:42
Búið er að opna veginn milli Ísafjarðar og Hnífsdals eftir aurskriðu Vegurinn á milli Hnífsdals og Ísafjarðar hefur verið opnaður á ný eftir að hafa verið lokað í morgun eftir að aurskriða féll niður Eyrarhlið og niður á veginn. 21.6.2022 07:37
Hvassir vindstrengir á norðanverðu Snæfellsnesi Lægð er nú að myndast á Grænlandshafi og hún gengur til austurs fyrir norðan land í dag. Því gengur í sunnan kalda eða strekking og fer að rigna, en hægari vindur og þurrt norðaustanlands þangað til seinnipartinn. 21.6.2022 07:07