Skýjabreiðan sem lá yfir landinu í gær heldur velli Veðurstofan spáir að í dag verði fremur hægur vindur á landinu, um þrír til átta metrar á sekúndu, og yfirleitt af suðvestri. 26.4.2022 07:02
Tólf sækjast eftir að taka við embætti ríkisendurskoðanda Tólf einstaklingar hafa gefið kost á sér í embætti ríkisendurskoðanda. 25.4.2022 14:50
Sagði „nauðgunarher“ vera á leið til samnemanda Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur staðfest ákvörðun sviðsstjóra Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um að víkja nemanda við sálfræðideild skólans úr skólanum að fullu eftir að hann hafði sent samnemanda skilaboð sem metin voru „óforsvaranleg“, „ógnandi“ og „til þess [fallin] að valda [ótta].“ 25.4.2022 10:15
Kjörsókn ekki minni síðan 1969 Emmanuel Macron Frakklandsforseti hét því í sigurræðu sinni við Eiffelturninn í París í gærkvöldi að sameina Frakkland að nýju og sýna fram á að hann sé forseti allra Frakka. 25.4.2022 08:04
Hægur vindur á landinu næstu daga Útlit er fyrir hægan vind um allt land næstu daga. Lengst af verður skýjað en sólarglennur á milli og er einkum að sjá að á Suðausturlandi verði einna bjartast. 25.4.2022 07:25
Lagði eigin íbúð í Hlíðunum í rúst Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í gærkvöldi rétt fyrir miðnættið en hann hafði brotið hurð að eigin íbúð í Hlíðunum í Reykjavík og lagt þar allt í rúst. 25.4.2022 07:14
Dæmdir fyrir að slá fimmtán ára dreng með hamri og felgulykli Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt tvo unga menn hvor um sig í fjögurra mánaða fangelsi og til greiðslu miskabóta vegna sérstaklega hættulegrar líkamsárásar gegn fimmtán ára dreng. Notuðust þeir við hamar og felgulykil við gerð árásarinnar. 22.4.2022 16:00
Guðrún Hulda nýr ritstjóri Bændablaðsins Guðrún Hulda Pálsdóttir hefur verið ráðin nýr ritstjóri Bændablaðsins. Hún tekur við stöðunni af Herði Kristjánssyni í júní næstkomandi. 22.4.2022 11:17
Fyrrverandi forseti Keníu látinn Mwai Kibaki, fyrrverandi forseti Afríkuríkisins Keníu, er látinn, níræður að aldri. Kibaki gegndi embætti forseta landsins á árunum 2002 til 2013. 22.4.2022 10:35
Tíu sjúklingar á Landspítala nú með Covid-19 Tíu sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19, þar af eru sex með virkt smit. Enginn sjúklinganna er á gjörgæslu. 22.4.2022 10:00