SaltPay greiðir rúmlega 44 milljóna króna sekt Greiðslumiðlunarfyrirtækið SaltPay hefur náð samkomulagi um að gangast undir sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME), en sáttin felst í að félagið greiði FME sekt sem nemur alls 44,3 milljónum króna. 28.1.2022 06:21
Tilkynnt um að hundur hafi bitið barn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna hunds sem hafði bitið barn í gærkvöldi eða í nótt. Í dagbók lögreglu segir þó að engir áverkar hafi verið á barninu. 28.1.2022 06:14
Birkir vill fimmta sætið hjá Samfylkingunni í Reykjavík Birkir Ingibjartsson, verkefnastjóri hjá borgarskipulagi Reykjavíkur, sækist eftir fimmta sætinu á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. 27.1.2022 11:22
Nýr metdagur: 1.567 greindust innanlands 1.567 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 43 á landamærum. Aldrei hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi og í gær, en fyrri metfjöldi var 1.558 síðastliðinn mánudag. 27.1.2022 10:43
Tekur við stöðu framkvæmdastjóra brandr Ása Björg Tryggvadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra brandr. Hún starfaði áður sem markaðsstjóri Bestseller ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. 27.1.2022 10:33
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fækkar milli daga 33 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu og eru tveir þeirra í öndunarvél. 27.1.2022 10:20
Andlát vegna Covid-19 Kona á níræðisaldri lést á legudeild Landspítalans af völdum Covid-19 í gær. 27.1.2022 10:12
Bein útsending: Janúarráðstefna Festu 2022 Janúarráðstefna Festu 2022 fer fram í dag milli klukkan 9 og 12 en um er að ræða stærsta árlega sjálfbærnivettvangur á Íslandi. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilara að neðan. 27.1.2022 08:31
Segja Biden munu standa við loforð um að tilnefna svarta konu Jen Psaki, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, segir að Joe Biden Bandaríkjaforseti muni standi við áður gefin loforð um að tilnefna svarta konu í stól hæstaréttardómara, nú þegar staða dómarans Stephen Breyer losnar í júní næstkomandi. 27.1.2022 07:53
Neitar að hafa verið góður vinur Ghislaine Maxwell Andrés prins sem sakaður er um kynferðisbrot í einkamáli í Bandaríkjunum neitar því að hann hafi verið góður vinur Ghislaine Maxwell, sem á dögunum var sakfelld fyrir mansal og kynferðisbrot í tengslum við milljarðamæringinn Jeffrey Epstein. Prinsinn neitar einnig öllum sakargiftum. 27.1.2022 07:00