Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar Föstudaginn 28. júní opnaði sýningin Nr. 5 Umhverfing með pompi á prakt á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði. Sýningin er með 52 listamönnum og nær yfir meira en 200 kílómetra svæði með fjölda listaverka bæði innanhúss og utandyra. 1.7.2024 15:58
Vænir, grænir og girnilegir matcha-molar að hætti Jönu Heilsukokkurinn og jógakennarinn Jana fer einstakar leiðir í matargerð og eru grænu matcha bitarnir orðnir ákveðið einkenni hennar. Þá hafa þessir grænu bitar Jönu sömuleiðis verið áberandi og ómissandi í skvísuboðum sumarsins. 1.7.2024 14:58
Cara í kossaflensi á Glastonbury Ofurfyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne er ástfangin upp fyrir haus og virðist sjaldan hafa verið á betri stað í lífinu. Í júní fagnaði hún tveggja ára sambandsafmæli með tónlistarkonunni Minke og gátu þær ekki slitið sig frá hvor annarri á Glastonbury tónlistarhátíðinni um síðustu helgi. 1.7.2024 12:48
Sterk sumarást í sveitinni kveikti áhugann á þýskunni „Textalega séð hef ég alltaf verið talsvert persónuleg,“ segir tónlistarkonan Margrét Kristín Sigurðardóttir sem notast við listamannsnafnið Fabúla. Blaðamaður ræddi við hana um listina en hún hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi síðastliðna þrjá áratugi. 1.7.2024 11:31
Stjörnulífið: „Þegar dagdrykkja fer úr böndunum“ Sumarlífið einkennist af miklu fjöri hjá stjörnum landsins og síðastliðin vika var stútfull af bæjarhátíðum, ferðalögum innan sem utanlands, afmælum, dagdrykkju og fleira flippi. 1.7.2024 09:55
„Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“ Markaðsstjórinn og tískuunnandinn Tania Lind Fodilsdóttir elskar takmarkaleysi tískunnar og eru einstakar og áberandi flíkur í miklu uppáhaldi hjá henni í bland við stílhreinan klæðaburð. Tania Lind er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 29.6.2024 11:31
Auðveldara að vera aðeins væmnari saman „Maður var kannski búinn að sakna þess innst inni að koma fram í tónlistinni,“ segir leikarinn og tónlistarmaðurinn Haraldur Ari, sem er að fara af stað með nýtt sóló verkefni. Hann og æskuvinur hans Unnsteinn Manúel voru að senda frá sér lagið Til þín en blaðamaður ræddi við þá um tónlistina og vináttuna. 28.6.2024 07:01
Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada Feðginin Anna María Þorsteinsdóttir og Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson eru bæði tvö miklir tískuunnendur. Í vor barst þeim draumaboð á tískusýningu risans Prada og þurftu þau ekki að hugsa sig tvisvar um þó að þeim hafi reynst mis erfitt að velja klæðnað fyrir þennan stóra viðburð. Blaðamaður ræddi við Önnu Maríu um þennan eftirminnilega dag, þar sem þau rákust meðal annars á hin einu sönnu Miuccia Prada og Raf Simons. 27.6.2024 11:31
Kenndi Kelly Clarkson að bera fram Laufey og Björk Tónlistarkonan og þáttastjórnandinn Kelly Clarkson fékk rísandi súperstjörnuna Laufeyju í heimsókn til sín í þáttinn Kelly Clarkson Show á dögunum. Virtust þær stöllur ná vel saman en Clarkson átti þó ansi erfitt með framburð á nafni Laufeyjar. 27.6.2024 10:42
Gústi B fann ástina hjá Hafdísi Sól Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn, jafnan þekktur sem Gústi B, er genginn út. Kærastan heitir Hafdís Sól, fyrrum fimleikadrottning og nemi í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Sömuleiðis er hún besta vinkona Friðþóru kærustu súkkulaðistráksins Patriks Atlasonar, sem er besti vinur Gústa B. 27.6.2024 10:02