Öruggari með sjálfa sig en nokkru sinni fyrr „Mér finnst ég sitja betur í sjálfri mér í dag,“ segir tónlistarkonan, Idol stjarnan og nýbakaða móðirin Saga Matthildur. Blaðamaður settist niður með henni og fékk að heyra frá viðburðaríku ári hennar. 22.11.2023 07:01
Myndaveisla: Upplifun á tilverunni í nýju ljósi Listakonan Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja á Kjarvalsstöðum um síðustu helgi. Margt var um manninn á opnuninni þar sem listunnendur sameinuðust og gerðu sér glaðan og skapandi dag. 21.11.2023 20:01
Myndaveisla: Frægir rithöfundar heiðruðu Gaiman Breska sendiráðið hélt móttöku til heiðurs breska rithöfundarins Neil Gaiman. Margt var um manninn og létu ýmis þekkt andlit sjá sig en hér fyrir neðan má sjá myndir úr veislunni. 20.11.2023 20:00
„Mystísk en um leið svo mannleg“ „Tónlistin er bara einhvern veginn þarna alls staðar, út og inn um allt,“ segir tónlistarkonan Inga Björk. Hún og verðlaunatónskáldið Alexander Bornstein voru að gefa út sína fyrstu þriggja laga EP plötu ásamt nýju tónlistarmyndbandi eftir Margréti Seemu Takyar. 20.11.2023 17:00
Ástarlag til löngu strætóferðanna Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Mikaels Mána við lagið Bus Song. Lagið er ástarlag til Strætó en strætóferðir hans á táningsárum mótuðu tónlistarsmekk hans og líf. 20.11.2023 12:00
„Góð hugmynd verður að gulli í höndum Þormóðs“ Kristmundur Axel og Árni Páll, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, ákváðu að sameina krafta sína og senda frá sér lagið Sólin. Lagið situr í sjöunda sæti Íslenska listans á FM957. 18.11.2023 17:00
Er stolt „basic bitch“ Athafnakonan og áhrifavaldurinn Birgitta Líf hefur gaman að fjölbreytileika tískunnar en er alltaf samkvæm sjálfri sér í klæðaburði. Hún hefur sérstaklega gaman af því að klæðast síðum og þröngum kjólum með óléttukúluna sína og setti sér markmið að klæðast ekki bara jogginggöllum á meðgöngunni. Birgitta Líf er viðmælandi í Tískutali. 18.11.2023 11:31
„Alls konar blessanir í slæmu hlutunum“ Útvarpsmaðurinn Axel Birgisson sér glasið hálf fullt í lífinu og er gjarnan lýst sem miklum stemningsmanni. Lífið tók skarpa U-beygju í sumar þegar Axel greindist með illkynja æxli en hann segir lífsreynsluna hafa kennt sér heilmikið. Blaðamaður settist niður með Axel og ræddi við hann um lífið, ferilinn, tónlistina, ástina, vináttuna og margt fleira. 18.11.2023 07:00
Nefndi verk um sjálfsblekkingu og græðgi 2008 fyrir hálfri öld „Á fyrstu sýningunni minni árið 1976 þá skíri ég þessar myndir 2008 - 2010, fyrir tæpum fimmtíu árum. Myndirnar eru dökkar, sjálfsblekkingin er mikil og þær heita nákvæmlega eftir árinu sem hrunið er,“ segir grafíkerinn og kolamálarinn Ragnheiður Jónsdóttir. Hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 17.11.2023 07:01
„Minnir áhorfandann á að við þurfum ekki að hlusta á allt“ „Ég byrjaði mjög snemma að hafa áhuga á myndlist, eflaust um fjögurra ára aldur. Ég var mikill dundari og var alltaf að lita og teikna. Ég man ekki eftir mér öðruvísi,“ segir listakonan og skartgripahönnuðurinn Hendrikka Waage, sem stendur fyrir listasýningunni Valkostir samtímans. Sýningin er opin á föstudag og laugardag í Hannesarholti. 15.11.2023 11:01