Stjórnendur Sorpu slegnir Starfsfólk og stjórnendur Sorpu eru slegin yfir því að köttur hafi lent í gildru á starfssvæði fyrirtækisins með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fót. Gildran hafi verið hluti af meindýravörnum og Sorpa talið að þetta gæti ekki gerst. Búið sé að segja upp verksamningi við meindýraeyði sem bar ábyrgð á gildrunni. 30.10.2026 18:16
Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Formaður Kennarasambands Íslands segir óvænt útspil stjórnvalda á þriðjudag hafa sett kjarasamninga kennara í uppnám. Lagt hafi verið til að hvika frá því markmiði sem lengi hafi verið stefnt að nokkrum dögum áður en frestur til að virkja forsenduákvæði í gildandi samningi rynni út. Ef samningsaðilar nái ekki aftur saman fyrir lok laugardags muni kennarar neyðast til að virkja umrætt ákvæði. 29.10.2026 21:59
Patrick Stewart látinn Enski leikarinn Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Hann átti glæstan feril á sviði og í kvikmyndum en er hvað þekktastur fyrir hlutverk sín sem skipsherrann Jean-Luc Picard í Star Trek: The Next Generation og prófessor Charles Xavier í X-Men-myndunum. Hann lést á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær. 29.10.2026 20:02
Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð Árekstur varð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í kvöld þar sem ökumaður bifreiðar keyrði utan í tvo aðra bíla. Engin slys urðu á fólki en nokkuð er um umferðartafir á svæðinu á meðan unnið er að því að hreinsa vettvanginn, að sögn lögreglu. 29.10.2026 19:05
Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Landsbankinn hagnaðist um 33,1 milljarð króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þetta er aukning frá síðasta ári þegar hagnaður nam 29,5 milljörðum á sama tímabili. Hreinar vaxtatekjur voru 58,3 milljarðar króna samanborið við 49,4 milljarða á fyrstu níu mánuðum 2025. Nemur þetta um 18 prósenta aukningu milli ára. 29.10.2026 16:41
Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs, samanborið við 19,3 milljarða á sama tímabili árið 2025. 29.10.2026 16:00
Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell Ertu snjallari en hinir í fjölskyldunni eða vinahópnum? Spreyttu þig á Krakkatíunni og reyndu að svara fjölbreyttum spurningum úr ýmsum áttum! 25.10.2026 06:00
Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis. 24.10.2026 06:02
Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum segir mál flugfarþega sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í uppfærslu á fyrsta farrými en greiddi í raun sexfalt hærri fjárhæð því miður ekki koma sér á óvart. Að mörgu þurfi að huga þegar komi að ferðalögum erlendis og þar þurfi ekki síst að lesa vel yfir skilmála hjá bílaleigum. Til að mynda hafa komið upp mál á Ítalíu þar sem fólk telur sig vera að leggja fram tryggingafé en er að kaupa óþarfa óendurgreiðanlega tryggingu. 22.10.2026 00:08
Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn E. coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Í ljósi þessa er íbúum ráðlagt að sjóða vatnið fyrir neyslu. Ákvörðunin var tekin í samráði við Matvælastofnun. 21.10.2026 22:41
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið