Fréttamaður

Eiður Þór Árnason

Eiður Þór er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Borgar­stjóri kom af fjöllum

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir fyrirætlanir um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og takmarka um leið aðgengi hjólabrettafólks hafa komið sér í opna skjöldu. Hún muni beita sér fyrir því að torgið verði áfram hluti af íslensku hjólabrettasenunni og nýr staður fundinn fyrir markaðinn.

Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra

Fulltrúar Okkar borgar og Góðan daginn segja skipulags- og samgöngumálin í brennidepli í komandi borgarstjórnarkosningum sem og rekstur Reykjavíkurborgar. Framboðin hafa mælst með minnst fylgi í könnunum og samkvæmt þeim vantar nokkuð upp á til þess að þau nái manni inn í borgarstjórn á laugardag.

Virti ekki endur­teknar óskir konunnar um að hætta

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir nauðgun með því að hafa án samþykkis og með ólögmætri nauðung haft kynferðismök við konu á heimili hennar í Hafnarfirði. Nauðgunin er sögð hafa átt sér stað 17. mars 2024.

Bæjar­full­trúi sagst vilja taka hann „bak við hús­vegg og skjóta“

Sviðs­stjóri um­hverfis- og fram­kvæmda­sviðs Reykja­nes­bæjar segir að bæjar­full­trúi og fram­bjóðandi Sam­fylkingarinnar hafi lýst því yfir að hann vildi helst fara með hann „bak við hús­vegg og skjóta“. Orðin hafi Hjörtur Magnús Guðbjarts­son látið falla í heimsókn til ónefnds verk­taka­fyrir­tækis í Reykja­nes­bæ en hann er í öðru sæti á lista Sam­fylkingarinnar.

„Það yrðu gríðar­leg von­brigði ef svo væri“

Forstjóri Icelandair telur ekki líkur á því að áhafnarskortur sem leiddi til þess að flugferð til Kaupmannahafnar var aflýst í dag tengist kjaraviðræðum við flugmenn og flugvirkja. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir engar aðgerðir í gangi á vegum félagsins.  Formaður Flugfreyjufélags Íslands tekur í sama streng.

Kona á sjötugs­aldri lenti á sjúkra­húsi með 125 pakkningar inn­vortis

Portúgölsk kona á sjötugsaldri sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Málum sem snúa að burðardýrum hefur fjölgað verulega að sögn lögreglu. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum.

Tók málin í eigin hendur þegar er­lenda vinnu­aflið kom ekki

Helga Rún Jóhannsdóttir þurfti að taka málin í sínar eigin hendur þegar seinkun á afhendingu vörugáms leiddi til þess að hópur erlendra verkamanna gat ekki sett upp padelvöllinn hennar á Reyðarfirði. Hann verður sá fyrsti á Íslandi utan höfuðborgarsvæðisins. Helga starfaði áður erlendis fyrir eitt stærsta fjárfestingarfyrirtæki heims en vill núna sinna verkefnum sem þjóna betur samfélaginu.

Sjá meira