Mugison þakkar innilega fyrir sig Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, vann til verðlauna í gær en hann hlaut Eddu fyrir tónlistina í þáttunum Felix & Klara. Hann segist ekki hafa verið að búast við verðlaununum en að það hafi verið algjör unun að geta unnið ásamt Ragnari Bragasyni og þakkar einnig fjölda fólks sem kom að verkinu. 30.5.2026 21:47
Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Benedikt Fazakerley Richardsson á tölvubraut var dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti nú á dögunum með einkunnina 9,83 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum. Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78 en þeir eru góðir vinir og kepptust um að vera með bestu meðaleinkunnina við útskrift. 30.5.2026 20:45
Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Fimm menn voru í dag úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald í kjölfar þess að upp komst að þeir hefðu tekið þátt í innflutningi mikils magns fíkniefna. Handtökur þeirra fóru fram í Reykjavík og Hveragerði. 30.5.2026 19:39
„Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Ríflega þúsund hafa þegar skrifað undir undirskriftalista sem ber yfirheitið Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð en í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð við vatnið. Á vef Hafnarfjarðar segir að „Hvaleyrarvatn og umhverfi sé eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu" og eru þar fjölmargar gönguleiðir. 30.5.2026 19:10
Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020. 30.5.2026 18:03
Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Marcia Lucas, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu á einni af Stjörnustríðsmyndunum í leikstjórn fyrrverandi eiginmanns síns, George Lucas, lést á miðvikudaginn, þann 27. maí, í Rancho Mirage í Kaliforníu. Hún var áttatíu ára þegar hún lést og hefur bandaríski miðillinn Variety eftir lögmanni fjölskyldunnar sem staðfesti að hún hefði látist úr krabbameini. 30.5.2026 00:01
Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Í tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér er fólk varað við svikurum sem hafa undanfarið sent út tölvupósta í nafni bankans. Þar er fólk blekkt til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og gefa upp öryggisnúmer. 29.5.2026 22:53
Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segir að veikindi Ingu Sæland muni ekki hafa áhrif á störf ríkisstjórnarinnar og að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, muni gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í fjarveru hennar. 29.5.2026 22:11
Nei eða já? Af eða á? Þrír mánuðir eru þar til þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram. Miklar deilur voru um málið á þingi og búast má við að sumarið litist af umræðum um hvort Ísland gangi í sambandið eður ei. Til að aðstoða landsmenn við að komast að upplýstri ákvörðun hefur fyrirtækið Reon sett í loftið vefinn já eða nei punktur is. 29.5.2026 21:49
Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Maður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðbundið fangelsi og gert að greiða rétt tæpar tvær milljónir fyrir að veitast að ellefu ára dreng sem tók þátt í dyraati á heimili hans. Atvikið átti sér stað í nóvember 2024 en maðurinn kom að brotnu gleri í útidyrahurð sinni og ákvað að leita uppi drengjahóp sem hafði reglulega verið að prakkarast við húsið. 29.5.2026 21:08