Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur ráðið Dagrúnu Fanný Liljarsdóttur í starf sveitarstjóra. Fimmtán umsóknir bárust um stöðuna. 18.7.2026 13:22
Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Fjöldi slasaðra í jarðskjálftunum sem riðu yfir Venesúela í júní er talinn vera í kringum sextán þúsund og sjö hundruð en hamfarirnar urðu ríflega fimm þúsund manns til bana. Skjálftarnir, sem voru 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með um mínútu millibili þann 24. júní og lögðu strandríkið La Guaira, norður af Caracas, í rúst. 18.7.2026 12:16
Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Fjörutíu og átta ára maður sem var færður fyrir dómara fyrir skömmu hefur verið ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndráps í tengslum við skotárásina í Nørresundby norðan við Álaborg í gær. Hann hefur játað að hafa skotið sextíu og tveggja ára mann í gær með þeim afleiðingum að sá lést, auk lögreglumanns sem er særður. 18.7.2026 10:51
Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Sjötugur maður sem nýlega opnaði sig um að hafa misst aleiguna til fjárkúgara hefur lifað í stöðugum ótta síðan kúgunin hófst. Vinur hans segir frá því að alls hafi hann greitt hópi fólks ríflega hundrað og átta milljónir en þau hótuðu honum að ljúga upp á hann öllu illu og beita hann ofbeldi ef hann neitaði að borga. 18.7.2026 10:28
Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Dæmi eru um að ferðamenn bóki nótt á gististöðum hérlendis, afbóki svo og fái endurgreitt eftir að þeir hafi notað aðstöðuna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það undir þeim sem leiga út gistingu komið að ákveða hvort mál séu tilkynnt lögreglu. Hann telji það þó eðilegt ef um svik eða skemmdarverk sé að ræða. 17.7.2026 16:56
Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Hér á landi er sannkallað sumarveður um nánast allt land í dag, þann 17. júlí. Það eru helst íbúar á Raufarhöfn og höfuðborgarsvæðinu sem njóta ekki sólar í dag en hitinn nær rétt um tólf stigum þar en fer mest upp í um tuttugu og þrjú stig á Akureyri. Veðurfræðingur segist sjá fram á að það rofi til í borginni á hverri stundu. 17.7.2026 14:09
Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Listamaðurinn Elli Egilsson Fox opnar í dag, föstudaginn 17. júlí, einkasýningu ásamt dóttur sinni Ignaciu, sem er fjögurra ára gömul, í gallerí Herma á Hverfisgötu. Sýning þeirra feðginanna heitir því viðeigandi nafni Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. 17.7.2026 11:55
Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Íslenska indírokksveitin Superserious gefur út nýtt efni nú um hásumar en lagið My phone or something verður aðgengilegt aðdáendum á morgun, föstudaginn 17. júlí. Er þetta önnur smáskífa af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar sem mun bera nafnið Superserious or something. 16.7.2026 23:40
Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Rútubílstjóranum Axel Gunnarssyni brá að eigin sögn ekkert smá mikið í dag þegar hann var hársbreidd frá því að lenda í hörðum árekstri. Bíll úr gagnstæðri átt tók fram úr bílaröð og rétt náði að beygja aftur inn á rétta akgrein í tæka tíð svo hann keyrði ekki framan á rútuna sem Axel ók. 16.7.2026 22:37
Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Júlíus Rúnar Þórðarson hefur verið dæmdur sekur um að nýta sér yfirburðastöðu sína gagnvart skjólstæðingi sem hann þjónustaði og nauðga henni að minnsta kosti einu sinni. Fyrir brotið hlaut hann þriggja ára fangelsisdóm en konan sem hann braut á er andlega fötluð og á við áfengisvanda að stríða sem og minnistap. 16.7.2026 21:53