Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Jeremy Clarkson, þáttastjórnandi „Top Gear“ og annarra breskra sjónvarpsþátta, greindi frá því á dögunum að hann hefði verið greindur með krabbamein. Í síðustu tveimur þáttum fimmtu þáttaraðar „Clarkson's Farm“ sagði Clarkson meðleikurum sínum, Charlie Ireland og Kaleb Cooper, frá greiningunni. 18.6.2026 10:36
Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Halla Tómasdóttir forseti sæmdi í dag fjórtán manns heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þeirra á meðal eru rithöfundurinn Andri Snær Magnason, matreiðslumeistarinn Hrefna Sætran og fyrirliði Grindavíkur í körfuknattleik, Ólafur Ólafsson. 17.6.2026 14:59
Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Lögreglumaður í Mississippi skaut hinn eins árs gamla Kohen Kartier Wiley til bana á sunnudaginn síðasta, þann fjórtánda júní. Wiley hafði verið í verslun Walmart ásamt móður sinni og frænku þegar skotið var á þau þar sem þau óku um bílastæðið á silfurlituðum fólksbíl. Lögregla segir í yfirlýsingu að móðir hans og frænka hafi verið grunaðar um búðarhnupl. 17.6.2026 14:36
Elín Hall er fjallkonan í ár Leikkonan og söngkonan Elín Sif Halldórsdóttir er fjallkonan í ár. Lýðveldi Íslands er áttatíu og tveggja ára í dag og af því tilefni var blásið til hátíðarhalda víða um land og þar á meðal í Reykjavík. Að vanda hvíldi mikil leynd yfir því hver myndi fara með hlutverk fjallkonunnar þar til hún gengi út úr Alþingishúsinu klædd skautbúningnum. 17.6.2026 11:32
Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Fjórir eru sagðir hafa rænt sjónvarpi úr Costco á opnunartíma í gærkvöldi. Lögregla segir mennina sjást á upptöku en ekki hafi náðst að hafa uppi á þeim. 17.6.2026 11:30
Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Stofnað hefur verið nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS, LOGOS endurskoðun & ráðgjöf ehf. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Deloitte, verður forstjóri og leiðir uppbyggingu félagsins. 17.6.2026 10:40
Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Það er úr mörgu að velja í miðborg Reykjavíkur í dag, þjóðhátíðardag Íslendinga, en í Marshall-húsinu úti á Granda verður opnuð sýningin „Hæhóogjibbíjei” klukkan fimm. Að baki sýningunni standa listakonan Elísa Þóreyjardóttir, tvíeykið í Gallerí Kichin og eigendur gallerísins Kling & Bang en nammitískubylgjur á íslenskum markaði voru meðal þess sem Elísa dró innblástur af við undirbúning sýningarinnar. 17.6.2026 10:11
Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku. 17.6.2026 09:04
Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Mette-Marit krónprinsessa Noregs hefur gengist undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur undandarið sést með súrefnisgleraugu. 17.6.2026 08:22
Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Sérsveitin aðstoðaði lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt vegna tilkynningar sem þeim barst um að maður væri vopnaður hníf á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Hann á að hafa verið að ógna öðrum manni en maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. 17.6.2026 08:03