„Víða herjað á störf blaðamanna“: Heimir Már býður sig fram til formanns Blaðamannafélags Íslands Heimir Már Pétursson, fréttamaður á ritstjórn Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Blaðamannafélags Íslands. Hann segir almenna stöðu fjölmiðlunnar og nauðsyn þess að verja kjör blaðamanna ástæðu framboðsins. 22.3.2021 19:18
Um 600 kvartanir vegna kynferðisbrota af hálfu Lundúnarlögreglunnar á fjögurra ára tímabili Breskum yfirvöldum bárust 594 tilkynningar vegna kynferðisbrota af hálfu Lundúnarlögreglunnar á árunum 2012 til 2018. Alls voru 119 mál rannsökuð, þeirra á meðal mál lögreglumanns sem réðst á þolanda heimilisofbeldis. 22.3.2021 15:05
Skipið að koma frá Brasilíu: Meiri samfélagsdreifing mögulega í uppsiglingu segir Þórólfur Skipið sem nú liggur við höfn á Reyðarfirði vegna Covid-19 veikinda skipverja var að koma frá Brasilíu. Tíu af nítján áhafnarmeðlimum hafa þegar greinst en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir líkur á að allir skipverjar séu með kórónuveiruna. 22.3.2021 11:15
Trump rannsakaður hátt og lágt Donald Trump, sem nýtur ekki lengur friðhelgi foretaembættisins, á nú yfir höfði sér fjölmörg dómsmál, bæði einkamál og sakamál. Sum tengjast gjörðum hans á meðan hann sat enn í embætti en önnur viðskiptagjörningum og óvarlegum umælum, svo eitthvað sé nefnt. 22.3.2021 09:04
Enn mikil aðsókn að svæðinu en hætturnar margar í myrkrinu Enn er mikil aðsókn að gosstöðvunum í Geldingadal, þrátt fyrir myrkur og erfiðar aðstæður. Björgunarsveitarmenn og lögregla verður á staðnum í nótt en vara enn og aftur við því að fólk freisti þess að fara of nálægt. 20.3.2021 21:39
British Airways horfir til heimavinnunnar og íhugar að selja höfuðstöðvarnar Forsvarsmenn British Airways íhuga nú að selja höfuðstöðvar sínar vegna þess hve margir starfsmenn eru farnir að vinna heima. Höfuðstöðvarnar voru byggðar árið 1998 og kostuðu 200 milljónir punda, eða um 35 milljarða íslenskra króna. 20.3.2021 21:32
Lítið en mikilfenglegt „túristagos“ Eldgosið í Geldingadal hefur nú staðið í næstum sólahring. Þetta er lítið gos en mikilfenglegt engu að síður, segja þeir sem hafa séð það með eigin augum. Fögur gígaröð er að mótast í gosinu, sem kann að vera það fyrsta af mörgum. 20.3.2021 19:43
Breskir sérfræðingar segja hefðbundið ferðasumar ólíklegt og óráðlegt Einn ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar segir afar ólíklegt að sólarlandaferðir séu í kortunum hjá Bretum í sumar, vegna hættunnar á því að fólk snúi heim með nýtt afbirgði SARS-CoV-2 í farteskinu. 20.3.2021 19:07
Sex ljón afhöfðuð og hrammarnir hirtir Sex ljónshræ hafa fundist í Queen Elizabeth National Park í Úganda. Grunur leikur á um að eitrað hafi verið fyrir dýrunum en búið var að afhöfða þau og fjarlæga hramma þeirra. 20.3.2021 18:35
Sjá mikinn og fallegan rauðan bjarma úr Grindavík „Maður sér bara mikinn og fallegan rauðan bjarma fyrir austan bæinn,“ segir Vilhjálmur Árnason þingmaður um gosið sem hafið er við Fagradalsfjall. 19.3.2021 22:39