Von á 1.200 skömmtum frá Moderna á morgun Von er á 1.200 skömmtum af bóluefninu frá Moderna á morgun, sem verður notað til að ljúka bólusetningu einstaklinga í framlínuhópum. Í kjölfarið munu berast 1.200 skammtar af bóluefninu á tveggja vikna fresti. 11.1.2021 11:28
Ekkert bendir til aukins fjölda dauðsfalla í kjölfar bólusetninga Ráðist var í þrenns konar athuganir í kjölfar andláta sem urðu eftir bólusetningar gegn Covid-19. Þetta sagði Alma Möller landlæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19 faraldursins rétt í þessu. 11.1.2021 11:19
Umboðsmaður Alþingis vill fá upplýsingar um öll alvarleg atvik hjá frelsissviptum Settur umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að dómsmálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið sjá til þess að stofnanir sem undir þau heyra og hýsa frelsissvipt fólk tilkynni umboðsmanni um alvarleg atvik sem þar verða. 11.1.2021 10:56
Söngvarar lýsa yfir vantrausti og bera óperustjóra þungum sökum Félagsfundur Klassís, fagfélags klassískt menntaðra söngvara á Íslandi, hefur lýst yfir vantrausti á stjórn og óperustjóra Íslensku óperunnar, Steinunni Birnu Ragnarsdóttur, „vegna stjórnunarhátta stofnunarinnar á undanförnum árum.“ 11.1.2021 09:19
Borgaryfirvöld í Seúl til óléttra kvenna: Hugaðu að útlitinu og eldaðu mat fyrir karlinn fyrir fæðinguna Mikil reiði braust út á samfélagsmiðlum í Suður-Kóreu þegar borgaryfirvöld í Seúl gáfu út leiðbeiningar til óléttra kvenna, þar sem þeir var meðal annars ráðlagt að huga að útlitinu og hafa tilbúnar máltíðir og hrein föt fyrir karlinn fyrir fæðingu. 11.1.2021 08:42
Þóra beið lægri hlut í launadeilu við Óperuna Íslenska óperan hefur verið sýknuð í máli sem söngkonan Þóra Einarsdóttir höfðaði á hendur Óperunni vegna meintra vangoldinna greiðslna. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málskostnaður fellur niður. 8.1.2021 14:02
Breytingar 13. janúar: Tuttugu mega koma saman, ræktin opnuð og íþróttir fá grænt ljós Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lagt til að rýmka reglur um fjöldatakmarkanir í 20 manns. Þá verður líkamsræktarstöðvum heimilt að opna aftur en aðeins til að bjóða upp á hópatíma og þá með ákveðnum skilyrðum. 8.1.2021 12:20
Hverjar verða afleiðingar atburða gærdagsins? Mikill titringur er í Washington D.C. eftir atburðarás gærdagsins og meðal annars rætt óformlega um að koma forsetanum frá. Bandaríska þingið lauk í gær talningu atkvæða kjörmanna og því ekkert sem kemur í veg fyrir að Joe Biden verði forseti 20. janúar nk. 7.1.2021 13:42
„Hann var algjört skrímsli í dag“ Donald Trump Bandaríkjaforseti varði gærkvöldinu í Hvíta húsinu umkringdur nánustu ráðgjöfum sínum, á meðan annað starfsfólk fylgdist með þróun mála í vantrú og skelfingu. 7.1.2021 13:26
Obama sakar repúblikana um að afvegaleiða stuðningsmenn sína Atburðarás dagsins verður skráð í sögubækurnar sem hneisa og skömm bandarísku þjóðarinnar. Þetta segir Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í yfirlýsingu sem hann hefur birt á Twitter. 7.1.2021 02:13