Segir forystu Repúblikanaflokksins aumkunarverða og kunna ekkert nema að tapa Svo virðist sem uppreisn sé hafin gegn ofríki Donald Trump innan Repúblikanaflokksins en forsetinn fór mikinn á Twitter í dag eftir að samflokksmenn hans í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til hermála, sem Trump hafði neitað að lögfesta með undirskrift sinni. 29.12.2020 17:39
Gefa út yfirlit yfir breska fjárfesta í verslun með þræla Breskir fræðamenn hafa fengið styrk frá breskum stjórnvöldum til að gefa út rit þar sem safnað verður saman upplýsingum um alla Breta sem fjárfestu í verslun með þræla á árunum 1640 til 1807. 28.12.2020 16:53
Útlit fyrir að sex skammtar leynist í hverju glasi Útlit er fyrir að hægt verði að ná sex skömmtum í stað fimm úr hverju glasi af bóluefninu frá Pfizer og BioNTech sem barst hingað til lands í morgun. Einfaldur útreikningur leiðir í ljós að skammtarnir telja þá tólf þúsund í stað tíu þúsund. 28.12.2020 14:49
„Þigg bólusetningu þegar kemur að mér“ Starfsmönnum bráðamóttöku Landspítalans eru farin að berast boð í bólusetningu. Þetta staðfestir Ragnar Freyr Ingvarsson, umsjónarlæknir göngudeildar Covid-19. Sjálfur hefur hann ekki fengið boð en segist afar rólegur; mikilvægast sé að bólusetja aldraða og þá sem eru í nánum samskiptum við sjúklinga. 28.12.2020 13:59
Bretar stefna á strangar reglur um óhollustu í verslunum 2022 Bresk stjórnvöld hyggjast banna matvöruverslunum að staðsetja óhollar matvörur og drykk við afgreiðslukassa. Þá hyggjast þau einnig banna verslunum að selja þau í svokölluðum „tveir fyrir einn“ tilboðum. 28.12.2020 12:11
Nákvæmlega tíu mánuðir frá því að SARS-CoV-2 greindist fyrst hér á landi Í dag eru nákvæmlega tíu mánuðir frá því að veiran kom til landsins, sagði Alma D. Möller landlæknir við athöfnina þegar bóluefnið frá Pfizer og BioNTech kom í hús hjá Distica í morgun. 28.12.2020 11:19
Ekki stórir kassar en sögulegir, segir heilbrigðisráðherra „Þetta er stór dagur hjá okkur öllum,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, þegar 10 þúsund skammtar af bólefni Pfizer og BioNTech komu í hús hjá Distica rétt í þessu. 28.12.2020 10:57
Dómsmálaráðherra Svía sætir gagnrýni: Skrapp á útsölur til að kaupa jólagjöf handa mömmu og pabba Dómsmálaráðherra Svía sætir nú gagnrýni eftir að hafa skellt sér á útsölur í Nova-verslanamiðstöðinni í Lundi á annan í jólum. 28.12.2020 10:27
Árið 2020 í myndum Ársins 2020 verður vafalítið minnst sem árs Covid-19 en þó gerðist margt annað markvert. Veður var oft vont, kjaradeilur harðar og mikið rætt um nýja stjórnarskrá. Jörð skalf á Reykjanesskaga og þá létu náttúruöflinn finna fyrir sér á Flateyri, Suðureyri og Seyðisfirði.Þegar eitthvað var að frétta voru ljósmyndarar og tökumenn Vísis og Stöðvar 2 á staðnum og fönguðu meðal annars þá stemningu sem myndaðist í samfélaginu þegar götur voru mannlausar, raðir langar og þjóðin á varðbergi gegn nýrri vá.Hér má sjá sýnishorn af myndunum sem prýddu umfjöllun okkar á árinu. Fréttaannáll Stöðvar 2 verður svo á dagskrá að loknum kvöldfréttum 30. desember, bæði á Stöð 2 og Vísi. 25.12.2020 16:03
Enn eitt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum: Hefur stökkbreyst meira Tvö tilfelli nýs afbrigðis SARS-CoV-2 frá Suður-Afríku hafa greinst í Bretlandi. Heilbrigðisráðherra landsins hefur biðlað til þeirra sem hafa ferðast frá Suður-Afríku til Bretlands á síðustu tveimur vikum um að einangra sig. 23.12.2020 15:41