10,4% samdráttur landsframleiðslunnar á þriðja ársfjórðungi Verulegur samdráttur varð á landsframleiðslunni á þriðja árfjórðungi en þar vegur einna þyngst samdráttur í útflutningi ferðaþjónustu, sem dróst saman um 77%. 30.11.2020 10:17
Fluttur frá Bandaríkjunum og neyddur til að taka þátt í áróðri Ríkis íslam Bandarískur drengur sem ferðaðist með móður sinni og stjúpföður til Sýrlands árið 2015, þar sem síðastnefndi gekk til liðs við Ríki íslam, er kominn aftur til Bandaríkjanna. Stjúpfaðirinn féll í drónaárás en móðir drengsins situr í fangelsi fyrir að hafa fjármagnað hryðjuverkastarfsemi. 23.11.2020 22:07
Svona var 139. upplýsingafundurinn vegna faraldurs Covid-19 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og landlæknisembættið hafa boðið til upplýsingafundar kl. 11 í dag um stöðu Covid-19 faraldursins hérlendis. 23.11.2020 10:32
Gátu álfar og hobbitar látið sér vaxa skegg? Hvað með dvergakonur? Það stefnir nú þegar í að árið 2021 verði töluvert betra en það ár sem nú er að líða. Von er á bóluefni gegn SARS-CoV-2 og í dag bárust þær fregnir að á næsta ári komi út safn áður óbirtra ritgerða JRR Tolkien um Miðgarð. 20.11.2020 22:01
Lara Trump sögð vilja verða öldungadeildarþingmaður New York Times hefur eftir heimildarmönnum að Lara Trump, tengdadóttir Donald Trump, sé að velta því fyrir sér að bjóða sig fram til öldungadeildarinnar í Norður-Karólínu. 20.11.2020 22:01
Pfizer og BioNTech sækja um neyðarleyfi í dag Lyfjarisinn Pfizer og samstarfsfyrirtækið BioNTech munu sækja um svokallað neyðarmarkaðsleyfi í Bandaríkjunum í dag fyrir bóluefnið BNT162b2 gegn SARS-CoV-2. Það verður undir bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA) komið að ákveða hvort bóluefnið þykir nægjanleg öruggt til dreifingar meðal almennings. 20.11.2020 17:15
Mega gefa heilabiluðum sljóvgandi án samþykkis fyrir dánaraðstoð Reglum hefur verið breytt í Hollandi þannig að læknir má nú, án samþykkis, gefa sjúklingi sljóvgandi lyf áður en hann gefur honum lyf sem binda enda á líf sjúklingsins. Þetta ákvað nefnd sem fjallar um dánaraðstoð í kjölfar dóms þar sem læknir var sýknaður einmitt af þessum gjörningi. 20.11.2020 15:34
Rannsaka hvernig það gerðist að páfinn „like-aði“ fáklædda fyrirsætu Vatíkanið hefur hafið rannsókn á því hvernig það kom til að opinber Instagram-aðgangur páfa „like-aði“ mynd af fáklæddri brasilískri fyrirsætu. Ekki liggur fyrir hvenær atvikið átti sér stað en á myndinn var fyrirsætan, Natalia Garibotto, klædd í skólabúning. 20.11.2020 11:13
900 starfsmenn Mayo Clinic smitast á tveimur vikum Fleiri en 900 starfsmenn Mayo Clinic, eins virtasta rannsóknarsjúkrahús Bandaríkjanna, hafa smitast af Covid-19 á aðeins tveimur vikum. Næstum allir smituðust utan vinnu en tölurnar þykja sýna hvaða áhrif mikið samfélagssmit getur haft á starfsemi heilbrigðisstofnana. 18.11.2020 23:29
„Segðu kærastanum að láta mig fá fokking pening“ „Þetta var svolítið fyndið; um leið og hann fær rautt spjald fæ ég skilaboð á Instagram,“ segir Stefanía Sigurðardóttir, eiginkona Birkis Más Sævarssonar knattspyrnumanns, en henni bárust miður fallegar orðsendingar eftir að Birkir fékk rauða spjaldið í leik Íslands og Englands fyrr í kvöld. 18.11.2020 22:32