Dr. Football sektaður um hálfa milljón Fjölmiðlanefnd sendi stefnuvott að heimili Hjörvars Hafliðasonar, eiganda hlaðvarpsins Dr. Football, því hann svaraði ekki ítrekuðum erindum nefndarinnar. 22.10.2021 16:48
Arnaldur tilnefndur til verðlauna fyrir besta krimmann í Svíþjóð Arnaldur Indriðason glæpasagnahöfundur hefur verið tilnefndur til verðlauna af sænsku glæpaakademíunni. 22.10.2021 15:37
Lítil bókabrenna á Gróttu Bókabrenna er ekki það sama og bókabrenna. Bækur Elísabetar og Dags seldustu allar á Tunglkvöldi við Gróttuvita í gærkvöldi en ein bók var brennd stemmningarinnar vegna. 21.10.2021 14:13
Einlægnin er aldrei einföld Dagur Hjartarson skáld og rithöfundur er að senda frá sér nýja vísindaskáldsögu sem heitir Ljósagangur. Hún er aðeins gefin út í 69 eintökum og það sem ekki selst í kvöld verður brennt á báli. 20.10.2021 13:47
Anna Sigrún lætur í veðri vaka að Páll Vilhjálmsson sé siðblindur Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala, ritar grein þar sem hún lætur að því liggja að Páll Vilhjálmsson bloggari og framhaldsskólakennari sé siðblindur. 20.10.2021 09:15
Skrif Páls Vilhjálmssonar til skoðunar hjá skólanum Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ segir að þegar hafi á annan tug erinda borist skólanum vegna skrifa Páls Vilhjálmssonar. 19.10.2021 11:48
Sigurjón Kjartansson hættir hjá RVK Studios Sigurjón Kjartansson yfirmaður þróunarsviðs hefur sagt upp störfum hjá kvikmyndafyrirtæki Baltasars Kormáks og hyggst starfa sjálfstætt. 19.10.2021 10:31
Páll Vilhjálmsson sér ekkert bogið við umdeildan pistil um Helga Seljan Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, fordæma skrif Páls Vilhjálmssonar framhaldsskólakennara við Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Sjálfur segir Páll hugleiðingar sínar fullkomlega eðlilegar. 18.10.2021 14:51
Arnar Þór segir umhverfið hafa þrengt að hugsun sinni og hættir sem dómari Arnar Þór Jónsson héraðsdómari, hefur tekið ákvörðun um að láta af störfum en reynsla hans sem frambjóðandi hefur fengið hann til að taka þá ákvörðun. 29.9.2021 16:50
„Gersamlega óleysanlegur stjórnskipulegur vandi“ Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emerítus, er meðal fjölmargra sem rýnt hefur í þá stöðu sem upp er komin vegna talningaklúðurs í Norðvesturkjördæmi. Prófessorinn hefur lagt málin niður fyrir sig og sér ekki betur en að kerfið sé í hnút. 29.9.2021 10:33