Grindavíkurvegur undir hraun og alvarleg árás á forsætisráðherra
Rennsli og hraði hraunsins úr eldgosinu í Sundhnúkagígum jókst verulega í morgun. Hraun er tekið að renna yfir Grindavíkurveg norðan varnargarðanna við Svartsengi. Þá var tekin ákvörðun um að opna ekki í Bláa lóninu og gestum hótelsins gert að yfirgefa svæðið. Við ræðum við jarðverkfræðing á vettvangi í Svartsengi sem lýsir því sem fyrir augu ber í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.