Milt veður fram að og um helgi en svo tekur djúp lægð við Það verður hæg norðlæg eða breytileg átt í dag og á morgun. Það verður fremur þungbúið norðan- og austanlands og svalt, en bjartara sunnan heiða og mildara. Hiti er á bilinu 7 til 17 stig. Þetta kemur frami hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. 8.8.2024 09:55
Meiri harka í framkvæmdum en áður og fleiri mál fyrir dóm Reynir Sævarsson, formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga, segir hlutverk eftirlitsaðila við framkvæmdir jafn stórt og þess sem hannar framkvæmdina. Hann segir algengara nú en áður að mál fari fyrir dómstóla þegar eitthvað kemur upp við framkvæmd. Reynir fór yfir málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 8.8.2024 09:06
Óboðlegt að fangaverðir eigi í hættu að stórslasast í vinnunni Heiðar Smith, formaður félags fangavarða, segir vinnuaðstæður fangavarða hafa breyst mikið frá því að hann hóf störf sem fangavörður fyrir átta árum. Sá hópur sem afplánar sé orðinn erfiðari og algengara sé að andlega veikt fólk sé að afplána dóma. Þrír fangaverðir slösuðust í átökum við fanga í síðustu viku. Heiðar ræddi fangelsismál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 8.8.2024 08:39
Sérnám í bæklunarlækningum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna hefur viðurkennt Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem kennslustofnun til að annast sérnám lækna í bæklunarlækningum, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala. 9.7.2024 09:58
Gagnaleki á Messenger mögulega það versta sem gæti komið fyrir Gunnar Ingi Reykjalín forstöðumaður forstöðumaður skýja- og netreksturs Origo segir netárásum stöðugt fjölga. Fólk þurfi að vita meira til að geta brugðist við. Opin umræða sé mikilvæg og forvarnir áríðandi. En líka viðbragðsáætlanir við mögulegum árásum. 9.7.2024 09:02
Hlýjast á Norðausturlandi í dag Í dag má búast við suðvestan fimm til fimmtán metrum á sekúndu með lítilsháttar vætu. Hvassast verður norðvestantil. Það verður að mestu léttskýjað á austanverðu landinu. Hiti verður á bilinu 12 til 20 stig, hlýjast inn til landsins á Norðausturlandi. 9.7.2024 07:31
Skilaboð frá íslenskri ljósmóður á Gasa Hólmfríður Garðarsdóttir, ljósmóðir og sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi er við störf á neyðarsjúkrahúsi Rauða krossins í Rafah á Gaza. Þar sinnir hún konum á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu. Starfið hennar er krefjandi en hún segir að á fæðingardeildinni sjái fólk meiri hamingju en sorg 9.7.2024 07:03
Grunsamlegir menn reyndust dósasafnarar Tilkynnt var um tvo grímuklædda og grunsamlega aðila á rafhlaupahjólum í Kópavogi í gær eða nótt. Í dagbók lögreglu segir að þegar lögregla kom á vettvang hafi komið í ljós að mennirnir tveir voru að tína upp dósir og flöskur. 9.7.2024 06:49
Alelda bifreið við Rauðavatn Bíll valt við Rauðavatn í gær. Eftir að ökumanni var bjargað úr bílnum kviknaði í honum. Fjallað er um málið í dagbók lögreglu og færslu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. 9.7.2024 06:42
„Rússnesku hryðjuverkamennirnir verða að svara fyrir þetta“ Í það minnsta 41 er látinn eftir sprengjuárás Rússlands í Úkraínu í gær. Einn stærsti barnaspítali borgarinnar varð fyrir sprengjum. Um er að ræða eina banvænustu sprengjuárás síðustu mánaða en hún átti sér stað um miðjan dag. 9.7.2024 06:29