Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir það enn til rannsóknar hjá embættinu hvaðan tilkynningin kom um týndu ferðamennina í Kerlingarfjöllum í síðustu viku. Umfangsmikil leit fór fram að tveimur ferðamönnum en eftir um tveggja daga leit tilkynnti lögregla að um gabb hefði verið að ræða og frestaði leitinni. 12.8.2024 11:35
Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, segir matsferilinn töluvert víðara fyrirbæri en samræmd próf. Hún skilji gagnrýni á að það taki tíma að búa hann til en að baki hvers matsferils sé mikil vinna. 12.8.2024 10:02
Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki geta tjáð sig um mál vararíkissaksóknara á meðan málið er til skoðunar í ráðuneytinu. Hún hefur leitað sér ráðgjafar innan og utan ráðuneytis vegna málsins. Guðrún ræddi þetta mál, og fleiri, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 12.8.2024 08:57
Djúp lægð fer yfir landið Alldjúp lægð nálgast nú landið úr suðri. Í dag fer að rigna í norðaustan kalda eða stinningskalda, en hvassviðri suðaustantil seinnipartinn og er gul viðvörun í gildi fyrir það svæði frá klukkan 14 til 21 í kvöld. Í viðvörun Veðurstofunnar segir að veðrið verði varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. 12.8.2024 07:23
Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Sigurður Jóhannesson framkvæmdastjóri Mobility.is segir það fráleitt að sumarfrí opinbers starfsfólks tefji afgreiðslu hjálpartækja fyrir fólk með fötlun. Hann hefur í tvo mánuði beðið eftir vöruskoðun á 14 rafhjólastólum og rafskutlum sem fyrirtæki hans flytur inn. 9.8.2024 14:27
Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Fjórir sóttu um starf yfirdýralæknis. Það eru þau Brigitte Brugger, sérgreinadýralæknir, Egill Þorri Steingrímsson, dýralæknir, Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknir og Þóra Jóhanna Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir. Öll starfa þau hjá Matvælastofnun. Egill Þorri á að hefja starf sem nýr sviðsstjóri í september. 9.8.2024 13:54
Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hafa staðfest aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi sem unnin var af þverfaglegum starfshópi heilbrigðisráðherra undir forystu Þórólfs Guðnasonar fyrrverandi sóttvarnalækni. Áætlunin felur í sér skilgreindar aðgerðir og verkefni sem ráðast þarf í, forgangsröðun þeirra og kostnaðarmat. 9.8.2024 13:27
Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Sérsveit ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslan komu að umfangsmikilli lögregluaðgerð á Höfn í Hornafirði í gær. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengist málið fíkniefnum. 9.8.2024 09:19
Evrópska rafhlaupahjólaleigan Bolt opnar á Íslandi í dag Stærsta rafhlaupahjólaleiga Evrópu, Bolt, opnar á Íslandi í dag. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að til að byrja með verði 800 hlaupahjól í Reykjavík og að hægt sé að ferðast á þeim allt að 55 kílómetra í senn. Ekkert startgjald er til að leigja Bolt hlaupahjól og kostar mínútan 15 krónur eftir það. 9.8.2024 08:28
Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Benjamín Netanahjú, forsætisráðherra Ísrael, staðfesti í gær að fulltrúar í samninganefnd á vegum ísraelska ríkisins myndu mæta til samningaviðræðna á ný þann 15. ágúst. Það gerði hann eftir sameiginlegt ákall Bandaríkjamanna, Egyptalands og Katar þar sem kallað var eftir því að Ísrael og Hamas kæmu aftur að samningaborðinu til að ljúka viðræðum. Hamas hefur ekki svarað kallinu. 9.8.2024 07:50