Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Kerecis hlaut nýverið 24 milljóna styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs í alþjóðlegt samstarfsverkefni sem snýr að því að bæta meðferð brunasára í Afganistan. Kerecis framleiðir roð til sáragræðinga en brunasár eru afar algeng í þeim heimshluta. Forstjóri segir mikilvægt að varan sé ekki einungis aðgengileg í vestrænum heimi. 7.7.2024 22:01
Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, Elías Guðmundsson, segir það afar ánægjulegt að geta fjölgað meðferðarrýmum hjá sér í 29 á meðferðarheimilinu Krýsuvík. Með því verði hægt að styrkja kvennastarf samtakanna og kynjaskipta meðferðinni. 6.7.2024 07:00
Vill gera smokkinn sexí aftur Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskólans í Reykjavík segir áríðandi að gera smokka sexí aftur. Auk þess þurfi að tryggja betra aðgengi að þeim. Í gær var greint frá því að fjölgun hefði orðið í greiningum kynsjúkdóma. Sóttvarnalæknir segir það mögulega tengjast minni notkun smokksins og breyttri kynhegðun ungs fólks. 5.7.2024 12:01
Hitastig í júní undir meðallagi á öllum veðurstöðvum Júnímánuður var nokkur kaldur á landinu öllu. Hiti var undir meðallagi á öllum veðurstöðvum Veðurstofunnar. Mánuðurinn var óvenjulega úrkomusamur á Norðausturlandi auk þess sem það snjóaði óvenjulega mikið miðað við árstíma. 5.7.2024 11:46
Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Afbrotafræðingur segir fólk ekki eiga að vera hrætt við að vera afskiptasamt ef það telur annað fólk í hættu eða í þörf á aðstoð. Ábyrgðarþynning [e. bystander effect] geri það að verkum að fólk bregðist síður við. 5.7.2024 09:03
Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Forsætisráðherra Ísrael, Benjamin Netanyahu, hefur ákveðið að senda teymi samningamanna til að reyna að komast að samkomulagi við Hamas um vopnahlé og frelsun gíslanna sem enn eru í haldi Hamas. Daginn áður sendi Hamas Ísrael svar sitt við friðartillögu forseta Bandaríkjanna sem lögð var fram í maí. 5.7.2024 07:43
Stöðug fjölgun tilfella þar sem eggvopnum er beitt Líklegast er að egg- eða stunguvopnum sé beitt í þeim útköllum þar sem sérsveit er kölluð til vegna vopnaðs einstaklings. Á síðasta ári var eggvopnum beitt í 361 skipti eða 69 prósent tilfella og 64 prósent árið áður. Þá voru tilkynningar 274. 5.7.2024 06:22
Fólk geti verið með fleiri en einn kynsjúkdóm Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamýdíu. Sóttvarnalæknir segir áríðandi að fólk fari í skoðun og noti viðunandi varnir. Afleiðingar ógreindra sjúkdóma geti verið alvarlegar. 4.7.2024 13:00
Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Alls greindust 190 manns með nóróveiru í kjölfar smits sem kom upp á Hamborgarafabrikkunni síðasta sumar. Uppruni smitsins var ekki rakinn til ákveðinna matvæla. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu sóttvarnarlæknis fyrir árið 2023. Alls voru þrjár nóróveiruhópsýkingar skráðar á síðasta ári. Sú stærsta á Hamborgarafabrikkunni. 4.7.2024 10:00
Mikil fjölgun í greiningum á sárasótt og lekanda Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamydíu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ársskýrslu sóttvarnalæknis fyrir árið 2023. Þar segir að ráðast þurfi í frekari greiningu á hugsanlegum orsökum aukningar lekanda og sárasóttar til að efla forvarnir á markvissan hátt. Sýkingarnar geti haft alvarlegar langtíma afleiðingar. 4.7.2024 08:17