Kristín Sif og Stefán Jak yfir sig ástfangin Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100, og Stefán Jakobsson, söngvari í Dimmu eru nýtt par en parið birti myndir af sér á Instagram í dag þar sem má sjá þau njóta lífsins saman í Berlín. 29.6.2022 21:24
„Gríðarlegt andlegt og félagslegt sjokk og fjárhagslegt tjón“ Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnaði í dag tilboði Samhjóla, félags hjólhýsaeigenda á Laugarvatni, um að hjólhýsabyggðin fái að vera áfram gegn því að félagið sinni nauðsynlegum framkvæmdum. Formaður félagsins segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði og að sveitarfélagið hefði getað farið mannlegri leið að niðurstöðunni en hún gerði. 29.6.2022 20:47
R. Kelly dæmdur í 30 ára fangelsi Bandaríski söngvarinn R. Kelly var fyrr í kvöld dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir að nota frægð sína til að þvinga unga aðdáendur til samræðis og beita þá markvissri kynferðislegri misnotkun. Einnig var honum gert að greiða 100 þúsund dala sekt. 29.6.2022 19:21
Efla hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Víkingur Heiðar heiðraður Verkfræðistofan Efla hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2022 og við sama tilefni var Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, heiðraður fyrir störf sín á erlendri grund. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á mikilvægi alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem gengur vel að markaðssetja og selja íslenskar vörur. 28.6.2022 16:06
Nýbakaðir hjólhýsaeigendur ana út í umferðina án hliðarspegla Samkvæmt Samgöngustofu hafa 381 hjólhýsi verið nýskráð í ár. Hvort fólk hafi réttindi til að aka með þyngri eftirvagna getur velt á því hvenær maður fékk fyrst ökuréttindi. Að sögn lögreglu gerist það einstaka sinnum að fólk keyri réttindalaust en það sé hins vegar farið að gerast í auknum mæli að fólk aki án hliðarspegla. 28.6.2022 11:24
Vaktin: NATO hafi áhyggjur yfir tengslum Kínverja og Rússa Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir bandalagið ekki líta á Kínverja sem andstæðinga sína en þau hafi áhyggjur af sterkum tengslum Rússa og Kínverja og því að Kínverjar dreifi fölskum áróðri um bæði NATO og Vesturlönd. 28.6.2022 08:58
Drógu tvo vélarvana báta að landi og björguðu örmagna göngumönnum Tvisvar þurfti að kalla út björgunarskip Landsbjargar í dag, Gísli Jóns var kallaður út frá Ísafirði vegna vélarvana strandveiðibáts og Sjöfn í Reykjavík var kölluð út vegna vélarvana skemmtibáts við Viðey. Björgunarsveitarmenn þurftu einnig að bjarga örmagna göngumönnum á Sprengisandsleið og aðstoða mann sem hrasaði við Hengifoss. 27.6.2022 17:42
Útgerðarfélag Akureyringa selur línuskipið Önnu EA 305 Útgerðarfélag Akureyringa hefur selt línuskipið Önnu EA 305 til kanadíska fyrirtækisins Arctic Fishery Alliance. Að sögn Kristjáns Vilhelmssonar, útgerðarstjóra Samherja, er helsta ástæða sölunnar að útgerðin borgaði sig ekki fjárhagslega og því hafi þótt rökrétt að selja skipið. 27.6.2022 16:36
Byrjuð að framleiða Aulann mig 4 Framleiðsla er hafin á Aulanum mér 4 segir leikarinn Steve Carell sem talar fyrir illmennið Gru. Carell segir myndina rökrétt framhald af þriðju mynd seríunnar, hún fjalli um það hvernig fjölskylda þeirra Gru og Lucy virki sem heild nú þegar þau eru komin með börn. 27.6.2022 16:12
Árásarmaðurinn úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Zaniar Matapour, árásarmaðurinn sem skaut tvo til bana í skotárás í miðborg Oslóar aðfaranótt laugardags, var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag. Matapour er hvorki leyft að eiga samskipti við fjölmiðla né aðra og er gert að sæta einangrun í tvær vikur. 27.6.2022 15:26
Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti