Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Farþegar sem koma frá svæðum þar sem nýgengi kórónuveirusmita er 700 eða meira á hverja hundrað þúsund íbúa þurfa skilyrðislaust að fara í sóttkví í sóttvarnahúsi, samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem fjallað verður um í kvöldfréttum Stöðvar 2. 23.4.2021 18:28
Enn annað breskt afbrigði greinst hér á landi Einn einstaklingur greindist með nýtt afbrigði af breska afbrigði kórónuveirunnar. Smitið er rakið saman við smit einstaklings á landamærunum. Afbrigðið hefur ekki greinst áður hér á landi. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir þetta hafa komið á óvart. 23.4.2021 13:28
Leggur til strangari viðmið fyrir skyldudvöl ferðamanna Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til strangari viðmið fyrir skyldudvöl ferðamenna í sóttvarnahúsi en gert var ráð fyrir í upprunalegum hugmyndum ráðherra. Hann hefur skilað minniblaði þar að lútandi til ráðhera. 23.4.2021 12:23
Sóttvarnalæknir kominn að borðinu Frumvarp um skylduvist farþega frá útlöndum í sóttvarnahúsi tók miklum breytingum á næturfundi á Alþingi. Ráðherra fær nú umboð til að skilgreina áhættusvæði að fenginni tillögu sóttvarnalæknis, ólíkt hugmyndum sem ríkisstjórnin kynnti fyrr í vikunni. 22.4.2021 22:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Frumvarp um skyldudvöl fólks í sóttvarnahúsi tók miklum breytingum á nætufundi á Alþingi. Ráðherra fær nú umboð til að skilgreina áhættusvæði að fenginni tillögu sóttvarnalæknis, ólíkt hugmyndum sem ríkisstjórnin kynnti í fyrradag. 22.4.2021 18:14
„Aldrei verið eins lítil ástæða til að veita lagastoð jafnmikilli valdbeitingu“ Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var önnur þeirra tveggja þingmanna sem ekki studdu frumvarp heilbrigðisráðherra um sóttvarnarhús og ráðstafanir á landamærum. Hún segir aldrei hafa verið eins litla ástæðu til að veita jafnmikilli valdbeitingu á landamærunum lagastoð. 22.4.2021 14:15
Mál á hendur lögreglumanni um meint ofbeldi við handtöku fellt niður Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál á hendur lögreglumanni sem var til rannsóknar vegna meints ofbeldis við handtöku í Hafnarfirði í nóvember. Lögreglumaðurinn hefur snúið aftur til starfa eftir að hafa verið sendur í leyfi vegna málsins. 22.4.2021 12:01
Hefði viljað ganga lengra til að „stoppa lekann á landamærum“ Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður velferðarnefndar, segir miður að ekki hafi verið gengið lengra í frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í nótt við að veita sóttvarnayfirvöldum heimild til að „stöðva lekann á landamærum.“ Hún telur ósamstöðu innan ríkisstjórnarinnar um að kenna. 22.4.2021 11:38
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni um þróun kórónuveirufaraldursins hér á landi en hann er órólegur vegna stöðunnar. Átta af þeim sautján sem greindust með kórónuveiruna innanlands í gær voru ekki í sóttkví. 22.4.2021 11:35
Sjö brot gegn sóttkví og einangrun: Grunur um að sá sem kom af stað hópsmiti hafi virt einangrun að vettugi Grunur leikur á að sá sem kom af stað hópsmiti á leikskólanum Jörfa í Reykjavík hafi bæði brotið gegn skyldu um sóttkví og einangrun með þeim afleiðingum að yfir hundrað fjölskyldur eru komnar í sóttkví. Sjö brot gegn sóttkví og einangrun hafa verið skráð frá áramótum. 19.4.2021 18:28