Klökknaði yfir stuðningi vegna áfalls á árinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segist hafa fundið fyrir stuðningi frá fólki úr öllum stjórnmálaflokkum eftir að hún varð fyrir því áfalli á árinu að missa systur sína, Karitas H. Gunnarsdóttur. 1.1.2023 16:04
Króatar taka upp evru Króatía hefur tekið upp evru og gengið í Schengen-samstarfið, áratug eftir að landið gekk í Evrópusambandið. 1.1.2023 14:28
Hildur Björnsdóttir á von á barni Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og eiginmaður hennar Jón Skaftason eiga von á barni. 1.1.2023 13:12
„Bjóst aldrei við svona góðum viðbrögðum“ Dóra Jóhannsdóttir, leikstjóri áramótaskaupsins árið 2022, segist alls ekki hafa átt von á jafn góðum viðbrögðum við skaupinu og raun ber vitni. Hún segir ferlið hafa gengið einstaklega vel en um er að ræða hennar fyrsta leikstjórnarverkefni. 1.1.2023 12:53
Skjótt skipast veður í lofti Snjó kyngir nú niður á höfuðborgarsvæðinu og víða er lítið skyggni. Ofanhríð hófst upp úr klukkan tvö en fram að því hefur veður verið hið bærilegasta. Skjótt skipast veður í lofti, eins og þar segir. 31.12.2022 14:34
Brennum og flugeldasýningu á Selfossi aflýst Vegna veðurs hefur áramótabrennum og flugeldasýningu Árborgar verið aflýst. 31.12.2022 14:01
Fjöldamargar loftárásir á Kænugarð Fjöldamargar loftárásir hafa verið gerðar á Kænugarð og fleiri borgir Úkraínu í dag. Volodómír Selenskí forseti Úkraínu segir Rússa hafa ætlað sér að eyðileggja nýársfögnuð Úkraínumanna með árásunum. Loftvarnarflautur hafa ómað í höfuðborginni í allan dag. 31.12.2022 13:25
„Slapp vel til“ Ekki hefur ræst úr óveðri á höfuðborgarsvæði og Suðvesturlandi. Appelsínugul viðvörun var tekin úr gildi í morgun og eru nú aðeins gular viðvaranir í gildi. Búist er við bærilegu veðri í kvöld á suðversturhorninu en hvessir eftir miðnætti. Þjóðvegi hefur verið lokað á milli Hellu og Kirkjubæjarklausturs. 31.12.2022 11:13
Sæbraut lokuð vegna gamlárshlaups ÍR Sæbraut verður lokuð frá kl. 11:00-13:30 vegna Gamlárshlaups ÍR. 31.12.2022 09:16
Loka hringvegi milli Markarfljóts og Víkur Vegagerðin hefur lokað hringvegi á milli Markarfljóts og Víkur. 31.12.2022 09:07