Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir mögulegt að norðurkóreskir hermenn verði sendir á víglínuna í Úkraínu eða í Kúrsk í dag eða á morgun. Hermennirnir eru þó sagðir smávaxnir og illa búnir fyrir átök á svæðinu og varnarmálaráðherra Suður-Kóreu segir þá fallbyssufóður. 27.10.2024 10:02
Skólakerfið, pólitíkin, Bandaríkin og kílómetragjald Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. 27.10.2024 09:33
Flutningabíl ekið inn í þvögu í Tel Aviv Að minnsta kosti 35 eru sagðir vera særðir eftir að flutningabíl var ekið inn í þvögu fólks við strætóstoppistöð í úthverfi Tel Aviv í Ísrael í morgun. Lögreglan telur að um hryðjuverk sé að ræða. 27.10.2024 09:03
Neitaði að færa sig frá lögreglubíl Lögregluþjónar handtóku í gær mann sem stóð í vegi lögreglubíls og neitaði að færa sig. Þar að auki neitaði hann að fara af lögreglustöð þegar búið var að afla allra nauðsynlegra gagna um hann og var hann því vistaður í fangaklefa í nótt. 27.10.2024 07:36
Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Forsvarsmenn sjóhers Bandaríkjanna vinna að því að koma Patriot-loftvarnarkerfum fyrir á herskipum. Er það vegna ótta um að Kínverjar gætu notað ofurhljóðfráar eldflaugar til að sökkva herskipum á Kyrrahafi. 26.10.2024 16:36
Sagður hafa stöðvað stuðningsyfirlýsingu Forsvarsmenn bandaríska miðilsins Washington Post tilkynntu í gær að miðillinn myndi ekki lýsa yfir stuðningi við forsetaframbjóðenda og er það í fyrsta sinn í 36 ár. Auðjöfurinn Jeff Bezos, einn ríkustu manna heims og eigandi miðilsins, er sagður hafa bannað ritstjórn WP að lýsa yfir stuðningi við Kamölu Harris, eins og til stóð. 26.10.2024 13:24
Alma leiðir Samfylkinguna í Kraganum Alma Möller, landlæknir, mun leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi er í öðru sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður, í því þriðja. 26.10.2024 12:47
Listinn í Reykjavík norður: „Við ætlum að hrista upp í kerfinu“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, leiðir lista flokksins í Reykjavík norður, Dagur B. Eggertsson, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, er í öðru sæti og Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður, í því þriðja. 26.10.2024 12:23
Willum leiðir Framsókn í Suðvesturkjördæmi Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, mun leiða lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Kjördæmissamband Framsóknar í kjördæminu hefur samþykkt framboðslistann. 26.10.2024 12:01
Sverrir Einar kærir lögregluþjón fyrir rangar sakagiftir Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar og fyrrverandi eigandi skemmtistaðarins B5, hefur lagt fram kæru á hendur lögregluþjóns sem sakaði hann um að tálma störf lögregluþjóna og veist að sér með ofbeldi. Umræddur lögregluþjónn hafði áður kært Sverri en bæði héraðssaksóknari og ríkissaksóknari hafa vísað þeirri kæru frá. 26.10.2024 10:51