Verkföll í tveimur skólum til viðbótar Verkfallsaðgerðir hafa verið boðaðar í tveimur skólum til viðbótar í október og í nóvember. Það eru Heiðarskóli í Reykjanesbæ og Árbæjarskóli í Reykjavík sem bætast í hóp skóla þar sem til stendur að fara í verkfallsagðerðir. 24.10.2024 15:33
Einn látinn eftir að lest fór af sporinu í Noregi Lest sem var á leið frá Þrándheimi til Bodø í Noregi fór af sporinu í dag þegar aurskriða lenti á henni. Að minnsta kosti einn er látinn og fjórir eru sagðir slasaðir. 24.10.2024 14:49
Segir spjallþjarka bera ábyrgð á sjálfsvígi sonar hennar Móðir fjórtán ára drengs sem svipti sig lífi hefur höfðað mál gegn spjallþjarkafyrirtæki og segir þjarka fyrirtækisins bera ábyrgð á dauða hans. Sewell Setzer þriðji hafði um mánaða skeið talað við þjarka sem líkjast á persónunni Daenerys Targaryen, úr Game of Thrones. 24.10.2024 14:03
Vísaði skjalamálinu frá og á lista yfir mögulega dómsmálaráðherra Alríkisdómarinn Aileen Cannon er á lista framboðs Donalds Trump yfir mögulega dómsmálaráðherra, vinni hann sigur í forsetakosningunum í nóvember. Það er sami dómari og vísaði skjalamálinu svokallaða frá í sumar. Cannon hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að vernda Trump sem skipaði hana í embætti á síðustu dögum forsetatíðar sinnar árið 2020. 24.10.2024 10:44
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Einstaklega blóðugur“ september Harðir bardagar eiga sér stað víðsvegar í austurhluta Úkraínu og í Kúrsk-héraði í Rússlandi þessa dagana. Þá eru hermenn frá Norður-Kóreu sagðir í Rússlandi og fleiri á leiðinni og ráðamenn í Kænugarði hafa reynt að sýna bakhjörlum sínum hvernig þeir geta í sameiningu bundið enda á stríðið og skapað frið til langs tíma. 24.10.2024 09:02
Fyrsti fundur Xi og Modi í meira en fimm ár Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur tekið móti leiðtogum BRICS-ríkjanna svokölluðu, auk annarra þjóðarleiðtoga og erindreka í Kazan í Rússlandi en þar fer sextándi leiðtogafundur BRICS-ríkjanna svokölluðu fram. Fundur leiðtoga Kína og Indlands á hliðarlínunum í Kazan hefur vakið mikla athygli. 23.10.2024 16:56
Fjórir sagðir látnir eftir hryðjuverkaárás í Ankara Mikil skothríð og háværar sprengingar heyrðust í dag frá aðalskrifstofu fyrirtækisins Turkish Aerospace Industries í Ankara, höfuðborg Tyrklands í dag. Þungvopnað fólk ruddist svo þar inn. 23.10.2024 13:59
Staðfesta flutninga hermanna frá Norður-Kóreu til Rússlands Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir hermenn frá Norður-Kóreu hafa verið senda til Rússlands. Þar eigi þeir að aðstoða Rússa við stríðið gegn Úkraínu en óljóst sé með hvaða hætti. 23.10.2024 13:29
Fyrirburinn talinn í Belgíu Drengurinn Santiago, átján daga gamall fyrirburi sem tekinn var af sjúkrahúsi í París í fyrrakvöld er talinn hafa verið fluttur til Belgíu. Foreldrar drengsins tóku hann af sjúkrahúsi en sökum þess að hann er fyrirburi er talið að hann geti ekki lifað lengi án aðhlynningar heilbrigðisstarfsmanna. 23.10.2024 09:31
Sautján daga fyrirburi tekinn af sjúkrahúsi í París Lögreglan í París hefur lýst eftir sautján daga gömlum fyrirbura sem tekinn var frá sjúkrahúsi í borginni í gær. Foreldrar drengsins liggja undir grun og eru þau talin hafa tekið barnið af sjúkrahúsinu seint í gærkvöldi. 22.10.2024 11:07