Frumgerðin sprakk í loft upp í vel heppnaðri tilraun Frumgerð nýs geimfars fyrirtækisins SpaceX sprakk í loft upp við lendingu í tilraunaskoti í gær sem þykir þó vel heppnað. Starship SN8 var skotið í um tólf kílómetra hæð yfir Texas í Bandaríkjunum í gærkvöldi og var reynt að lenda geimfarinu aftur. 10.12.2020 08:15
Rannsóknarverkefni LHÍ fær tvær milljónir evra í styrk frá Evrópska rannsóknarráðinu Rannsóknarverkefni á vegum Listaháskóla Íslands hefur hlotið tveggja milljóna evru styrk frá Evrópska rannsóknarráðinu. Verkefnið kallast „Snjallhljóðfæri: að skilja gervigreind 21 aldar gegnum skapandi tónlistartækni“ og hlýtur dr. Þórhallur Magnússon, prófessor og deildarforseti tónlistardeildar Sussex háskóla í Englandi og rannsóknaprófessor við Listaháskóla Íslands styrkinn. 9.12.2020 15:59
Meintur njósnari sængaði hjá minnst tveimur borgarstjórum Kínversk kona, sem grunuð um að vera njósnari á vegum leyniþjónustu ríkisins, sængaði hjá minnst tveimur bandarískum borgarstjórum og myndaði tengsl við aðra stjórnmálamenn á vesturströnd Bandaríkjanna á árunum 2011 til 2015. 9.12.2020 14:53
Merkel kallar eftir hertum sóttvörnum Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur kallað eftir hertum sóttvarnaraðgerðum í Þýskalandi í aðdraganda jólanna. Í ræðu á þýska þinginu í morgun lýsti Merkel yfir stuðningi við tillögur sóttvarnalæknis Þýskalands sem fela meðal annars í sér að loka verslunum strax eftir jól, að sem flestir vinni að heiman og að jólafrí skóla verði lengd, svo eitthvað sé nefnt. 9.12.2020 13:36
Þingmenn sjá ekki hag í því að standa upp í hárinu á Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins ætla sér ekki að viðurkenna sigur Joe Bidens í forsetakosningunum fyrr en í næsta mánuði og jafnvel ekki fyrr en eftir að hann tekur embætti. 9.12.2020 10:52
Hættu við tilraunaskot á síðustu stundu Hætt var við tilraunaskot nýs geimfars fyrirtækisins SpaceX á síðustu stundu í gær. Sjálfvirkur skynjari í einni af eldflaugum geimskipsins stöðvaði geimskotið einungis rúmri sekúndu áður en það átti að hefjast. 9.12.2020 08:31
Segja Tarrant hafa misheppnast ætlunarverk sitt með árásinni í Christchurch Þrátt fyrir að nefnd sem rannsakað hefur hina mannskæðu hryðjuverkaárás í Christchurch í Nýja-Sjálandi, hafi fundið galla á reglugerðum og áherslu, komst nefndin að þeirri niðurstöðu að hið opinbera hefði ekki getað komið í veg fyrir árásina ef þessir gallar og önnur mistök hefðu ekki verið til staðar. 8.12.2020 15:31
Opna sögu- og tæknisýningar vegna aldarafmælis rafstöðvarinnar Orkuveita Reykjavíkur ætlar að opna sögu- og tæknisýningar undir merkjum Elliðaárstöðvar. Það verður gert í tilefni þess að á næsta ári verða liðin hundrað ár frá rafstöðin í Elliðaárdal var opnuð. 8.12.2020 13:14
Ætla að skjóta stærðarinnar geimskipi í tólf kílómetra hæð og lenda því aftur Starfsmenn SpaceX stefna að því að taka stórt skref í dag með því að skjóta nýrri frumgerð af geimskipinu Starship í um tólf kílómetra hæð og lenda því aftur. Til stendur að skjóta geimskipinu á loft frá Texas, þar sem Starship hefur verið til þróunar. 8.12.2020 12:57
Dularfull veikindi á Indlandi ekki útskýrð enn Rúmlega 500 hafa nú verið lagðir inn á sjúkrahús vegna dularfullra veikinda í Andhra Pradesh á Indlandi. Minnst einn hefur dáið en á fjögur hundruð hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. 8.12.2020 10:58