Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Stjórnir SL og Almenna – Lífsverks hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Sjóðurinn yrði sá fjórði stærsti á Íslandi með eignir upp á rúma þúsund milljarða króna. 29.5.2026 14:44
Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Sjálfstæðisflokkur og Byggðalisti hafa undirritað meirihlutasamkomulag í Skagafirði. Viðræður flokkanna á milli hafa staðið yfir síðan skömmu eftir kosningar. Rúv greinir frá. 29.5.2026 14:06
Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. 29.5.2026 13:37
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Listi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hafa náð saman um myndun meirihluta í Suðurnesjabæ en samstarfssamkomulag flokkanna var undirritað fyrr í kvöld. Til stendur að ráðið verði í stöðu bæjarstjóra. 26.5.2026 21:37
Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði kynntu fyrir stundu málefnasamning sinn undir kjörorðunum: „Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði.“ 26.5.2026 20:55
Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Þórður Þórarinsson er nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þórður er ráðinn af nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingarinnar. 26.5.2026 17:58
Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Framkvæmdum sem fara áttu fram á Suðurlandsvegi við Þingborg á morgun, þriðjudag, hefur verið frestað vegna veðurs. 25.5.2026 16:46
Hitamet í maí slegið í Bretlandi Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands. 25.5.2026 16:23
Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Metfjöldi útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands þetta árið og þurfti því að skipta nemendum í tvo hópa við athafnir sem fóru fram í Borgarleikhúsinu í gær. Alls settu 358 Verzlingar upp húfur sínar á laugardag og var fagnað í partíum um allt höfuðborgarsvæðið þar sem vinsælustu listamenn þjóðarinnar tróðu upp. 25.5.2026 15:24
Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að kalla til aðstoðar sjúkraflutningamanna í gærkvöldi þegar kona sem var þar í haldi féll í yfirlið. Þetta staðfestir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, í samtali við Vísi. Samkvæmt heimildum Vísis var nokkur viðbúnaður en sendir voru þrír sjúkrabílar að lögreglustöðinni. 25.5.2026 14:30