Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Fyrstu dagar Alfonsar Sampsted hjá Go Ahead Eagles í Hollandi hafa heldur betur verið viðburðaríkir. Hann mátti spila í kvöld þrátt fyrir rautt spjald í síðasta leik og skoraði afar snoturt en óvenjulegt mark. 5.2.2026 21:08
Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Þórsarar sneru aftur til keppni af krafti í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar þeir skelltu Stjörnunni í Garðabæ, 29-24. 5.2.2026 20:12
Framkonur flugu upp í þriðja sæti Fram komst, að minnsta kosti tímabundið, upp í 3. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld með stórsigri á botnliði Selfoss, 34-19, í Úlfarsárdal. 5.2.2026 19:43
Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Bakvörðurinn Hrannar Björn Steingrímsson verður ekki með KA næstu mánuðina, og mögulega ekkert á komandi leiktíð, eftir að hafa meiðst alvarlega á æfingu á mánudag. 5.2.2026 18:18
Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Forráðamenn Milwaukee Bucks hafa tjáð öðrum félögum í NBA-deildinni að Giannis Antetokounmpo sé ekki að fara neitt. Of mikil kurteisi er sögð hamla honum. 5.2.2026 17:44
Fjórar með nóró daginn fyrir fyrsta leik á ÓL Finnska kvennalandsliðið í íshokkí hefur orðið fyrir barðinu á nóróveirunni á versta tíma, eða daginn fyrir fyrsta leik liðsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Önnur lið reyna nú að forðast smit. 4.2.2026 17:18
Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Gríski körfuboltamaðurinn Giannis Agravanis verður með Stjörnunni í úrslitaleik VÍS-bikarsins á laugardaginn, gegn KR, þrátt fyrir hnefahöggið sem hann veitti leikmanni Keflavíkur í undanúrslitunum í gærkvöld. 4.2.2026 15:45
Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Eftir að hafa stýrt Þýskalandi til silfurverðlauna á EM í handbolta ákvað Alfreð Gíslason að senda loks gagnrýnendum sínum tóninn. Einn forvera hans í starfi, hinn þykkmotta Heiner Brand, er sammála Alfreð en segir suma gagnrýni þó eiga fullan rétt á sér. 4.2.2026 15:02
Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Í tilefni vaxtaákvörðunardags hjá Seðlabanka Íslands ákváðu strákarnir í Fantasýn hlaðvarpinu að skoða frammistöðu starfsmanna Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins, í fantasíuleik ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 4.2.2026 14:30
Böðvar kominn til ÍA frá FH Eftir að hafa verið tilkynnt að krafta hans væri ekki lengur óskað í Kaplakrika hefur Böðvar Böðvarsson verið eftirsóttur. ÍA vann kapphlaupið og samdi við þennan þrítuga bakvörð til tveggja ára. 4.2.2026 13:45