Íþróttafréttamaður

Sindri Sverrisson

Sindri er íþróttafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Everton vongott um háar bætur vegna Gylfa

Everton sér fram á að fá 10 milljónir punda í bætur vegna stöðunnar sem skapaðist þegar Gylfi Þór Sigurðsson var handtekinn af lögreglu í Manchester í júlí 2021, nú þegar ljóst er að Gylfi er laus allra mála.

Allt undir í Ólafssal í kvöld: „Vil frekar að menn prjóni yfir sig“

Það ræðst í kvöld hvort lið Hauka eða Þórs úr Þorlákshöfn fer í sumarfrí og um leið verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Máté Dalmay, þjálfari Hauka, vill frekar að sínir menn „prjóni aðeins yfir sig“ en að þeir mæti til leiks eins og í Þorlákshöfn á laugardaginn.

„Hann fær þessi ár ekki aftur“

„Hann fær aldrei aftur möguleika á að spila þessi tvö ár sem nú eru liðin. Maður veit því aldrei hvað hefði getað orðið,“ segir Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtaka Íslands, um Gylfa Þór Sigurðsson sem eftir tæplega tveggja ára bið er nú laus allra mála í Bretlandi.

Gylfi laus allra mála

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki ákærður vegna meintra brota gegn ólögráða einstaklingi, sem hann var handtekinn vegna í júlí 2021, og er hann því laus allra mála.

Ekkert líkur Lagerbäck, skoðanaglaður og getur snög­greiðst

Norðmaðurinn Åge Hareide tekur við íslenska karlalandsliðinu í fótbolta með glæsta ferilskrá í farteskinu. Vísir fékk norskan blaðamann sem gjörþekkir Hareide til að kynna betur manneskjuna og þjálfarann sem á að koma Íslandi á næsta stórmót.

Fundirnir sem felldu Arnar

Örlög Arnars Þórs Viðarssonar sem landsliðsþjálfara karla í fótbolta réðust endanlega á fjörutíu mínútna fundi stjórnar KSÍ á Teams 30. mars.

Telur Man. Utd eiga séns á að landa Bellingham

Paul Scholes segir líklegast að miðjumaðurinn eftirsótti Jude Bellingham fari til Real Madrid en segir að það hljóti einnig að koma til greina að hann fari til Manchester United.

Sjá meira